149. löggjafarþing — 50. fundur,  13. des. 2018.

fjáraukalög 2018.

437. mál
[15:35]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef svo sem ekki miklu við þetta að bæta. Ég nefndi þetta með varasjóðinn og frávik frá gildandi fjárlögum af því að mér finnst sanngjarnt að við setjum þetta í samhengi en vil líka bara ramma það inn aftur, eins og ég gerði í framsögu minni, að við getum heldur ekki alveg borið þetta saman. Við höfum núna komið þessu varúðartæki inn í fjárlögin sem ekki var þar áður þar sem þetta var áður hrein framúrkeyrsla.

Núna er ekki um það að ræða og þess vegna segi ég að þetta sé góður árangur með 0,7% frávikinu svo því sé til haga haldið.

Þegar við hófum umfjöllun í þinginu og síðan í nefndinni um fjáraukalagafrumvarpið stóð almenni varasjóðurinn í 1,8 milljörðum. Hann var kominn niður í 800 milljónir þegar við lukum meðferð málsins sem sýnir okkur að það mjatlast út af þessum sjóði og þess vegna var það ekki síður varúðarráðstöfun að klára ekki sjóðinn áður en fjáraukalagafrumvarpið var lagt fram.

Um þetta verklag held ég að megi ræða til framtíðar, hvort við eigum að koma okkur upp því verklagi að almenni varasjóðurinn sé tæmdur áður en kemur til fjáraukalaga. Það er bara heilbrigð umræða sem eðlilega þarf að fylgja endurskoðun á þeim ágætu lögum sem við störfum eftir. Ég mat það aftur á móti þannig að Ríkisendurskoðun væri með umsögn sinni um þetta fjáraukalagafrumvarp ekki afgerandi að setja út á meðferð eða tillögur þessara fjáraukalaga nema síður væri. Það var ekki mjög afgerandi gert, enda held ég að virðing fyrir þeim verkefnum sem uppi eru á hverjum tíma — ég rifja upp að við höfum, eins og ég nefndi í framsögu minni, lent í því í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar á miðju sumri að gripið var til viðbótarfjárveitinga vegna samgöngumála og þá var svolítið í þoku hvernig ætti að fara með þá fjármuni. (Forseti hringir.) Síðan var það gert aftur í þeirri ríkisstjórn sem nú situr, en í öllum aðalatriðum er verklagið orðið miklu betra en það var áður og þykist ég hafa ágæta þekkingu til að geta sagt þetta.