fjáraukalög 2018.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og fyrirspurnina. Við getum deilt um þetta með vegabréfaútgáfuna. Ég held að þetta hafi legið fyrir, það hafi ekki verið skyndiákvörðun að taka upp beinar flugsamgöngur til Indlands. Ég er hins vegar algjörlega sammála hv. þingmanni um að þetta sé að sjálfsögðu mikilvægt verkefni. Vonandi gengur það vel og kemur til með að halda áfram um óákveðinn tíma vegna þess að það eru gríðarleg tækifæri í því að fljúga beint frá Íslandi til Indlands. Ferðaþjónustan mun njóta góðs af og allir þeir sem tengjast þeirri atvinnugrein þannig að ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta er mikilvægt. Ég tel samt að menn hefðu átt að sjá þetta aðeins fyrir. Útgáfa vegabréfa var áður en þetta verkefni kom til sögunnar þannig að þetta er nokkuð sem ég held að hefði átt að vera í fjárlögum. Ég tel að menn hefðu fyrr átt að sjá fyrir að þarna væri aukning í vændum.
Ég þakka síðan hv. þingmanni fyrir að skýra út eftirlitið með heimagistingunni og að þetta sé í raun og veru millifærsla. Það er ágætt að það komi hér fram vegna þess að það var svolítið óljóst hvernig í pottinn var búið.