149. löggjafarþing — 50. fundur,  13. des. 2018.

fjáraukalög 2018.

437. mál
[17:18]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir málefnalega ræðu og góða yfirferð á málinu. Það var eitt sem ég hjó eftir í ræðu hans, þ.e. að talað var um innleiðingarferli á lögum um opinber fjármál. Þá langar mig til þess að velta því upp hér: Hvenær segjum við nei við fjárheimildarbeiðni sem ekki er rökstudd samkvæmt lögum um opinber fjármál? Hvert er innleiðingarferlið þar? Hvenær lýkur því innleiðingarferli? Í lögum um opinber fjármál eru t.d. ársskýrslur með undanþágu. Þær þurfti fyrst að leggja fram á þessu ári en ekki fyrr. En hvar er undanþágan fyrir því að sleppa að fylgja ströngum skilyrðum varasjóðs og fjárauka?