149. löggjafarþing — 50. fundur,  13. des. 2018.

stuðningur við útgáfu bóka á íslensku.

176. mál
[20:01]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég get alveg tekið undir það að ég hef vissar áhyggjur af þessu. En það var einmitt það sem ég var að reyna að koma að í ræðu minni, virðulegi forseti, að mér fyndist þetta ekki rosalega auðvelt. Almennt vil ég jafnar aðgerðir, t.d. að lækka tryggingagjald og búa fyrirtækjum í landinu skýra og einfalda ramma og að þar gætu allir vaxið og dafnað. Það væri hin fallega mynd ef svo gæti verið.

Ég viðurkenni að íslenskt málsvæði er örsvæði og hægt er að færa mörg rök fyrir því að við þurfum að ráðast í einhverjar aðgerðir til að vernda íslenskuna og ýta undir bóklestur. Þetta er sú niðurstaða sem komist var að. Ég sé rök í því. En eins og ég ítrekaði líka áðan, mér finnst mjög mikilvægt að fylgst sé vel með framvindu þessa máls, hvaða árangur þetta raunverulega ber. En það breytir þeirri afstöðu ekki að mér finnst almennt best að skattkerfið sé tiltölulega einfalt. En það er það ekki alls staðar úti í Evrópu. Mörg lönd eru með tekjuskattströppur og gríðarlegt flækjustig. Það samræmist samt sem áður ekki algjörlega minni pólitísku hugsun, hún er enn þá sú að við eigum að hafa kerfið eins einfalt og skýrt og hægt er.