fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
Herra forseti. Ástæða þess að allir stjórnmálaflokkar á Alþingi standa saman að þessu frumvarpi er nauðsyn þess að efla starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka, efla lýðræðið. Á Íslandi eru færri þingmenn með færri starfsmenn en á hinum Norðurlöndunum og í þokkabót fá stjórnmálaflokkar á Íslandi lægri fjárframlög. Minnkandi fjármagn dregur úr stuðningi við nýsköpun, þróun og sérfræðiþekkingu stjórnmálasamtaka. Hér er auk þess framkvæmdarvaldið mjög sterkt og í yfirburðastöðu við löggjafarvaldið og er þetta frumvarp liður í að jafna þá stöðu.
Með frumvarpinu er einnig stefnt að því að auka gagnsæi og jafna stöðu flokka óháð stærð. Í breyttu flokkaumhverfi með fleiri og þar af leiðandi minni flokkum er nauðsynlegt að tryggja rekstrargrundvöll smærri flokka svo þeir geti sinnt lýðræðislegum skyldum sínum. Ég tel það líka mjög mikilvægt að hér er verið að stíga fyrsta skrefið í baráttunni gegn hatursáróðri, nafnlausum og neikvæðum áróðri og árásum í stjórnmálabaráttu. Það er sérstaklega mikilvægt í heimi þar sem samfélagsmiðlar verða sífellt mikilvægari í þeirri baráttu.