fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
Virðulegi forseti. Þetta frumvarp er til mikilla bóta fyrir fulltrúalýðræðið á Íslandi. Með frumvarpinu bætum við aðstæður lítilla flokka og aukum þannig jafnræði á milli eldri og rótgróinna flokka og nýrri og minni flokka. Þá felur frumvarpið í sér ýmsar betrumbætur, m.a. er gegnsæið aukið. Við treystum betur rekstraröryggi flokka í sveitarstjórnarkosningum, einföldum og skýrum reglur um framlög til stjórnmálaflokka þannig að tengdir aðilar geti ekki svo auðveldlega lagt of mikið fé til flokka, og kveðum á um skyldu til að birta ársreikninga flokka og fleira.
Það er óskandi að sem flestir landsmenn sjái tækifærin sem felast í því að geta tekið þátt í stjórnmálastarfi, annaðhvort í þeim flokkum sem fyrir eru eða með því að stofna nýjan flokk. Það er nauðsynlegt að á Alþingi og í sveitarstjórnum setjist sem fjölbreyttastur hópur fulltrúa. Stjórnmálaflokkar þurfa frá fyrsta degi að vera burðugir til að takast á við kosningar og eftirlit með þeim þarf að vera gegnsætt.