149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

breyting á ýmsum lögum vegna laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

77. mál
[11:31]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Eins og kom fram í máli hv. þingmanns var þetta mál til mikillar umræðu í nefndinni og minni hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur til breytingu vegna þeirrar umræðu sem þar átti sér stað.

Í 2. gr. frumvarpsins er kveðið á um breytingu á 9. mgr. 5. gr. laga um Innheimtustofnun sveitarfélaga sem ætlað er að veita tilteknum aðilum lagaheimild til að senda stofnuninni persónuupplýsingar enda skuli nýta þær í þágu lögbundinnar starfsemi hennar.

Á meðal þeirra aðila sem senda skulu Innheimtustofnun sveitarfélaga upplýsingar, verði frumvarpið að lögum, eru Fangelsismálastofnun og sveitarfélög. Þær persónuupplýsingar sem þessir aðilar munu senda Innheimtustofnun varða m.a. refsivist og fjárhagslega sem og félagslega stöðu einstaklinga.

Að mati minni hluta nefndarinnar er í þessum tilvikum um að ræða svo viðkvæmar persónuupplýsingar sem eðlilegt er að gera kröfu um að ekki verði sendar á milli opinberra aðila nema fyrir liggi samþykki þess sem þær varða. Minni hlutinn leggur að þessu virtu til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Við 2. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skulu Fangelsismálastofnun og sveitarfélög ekki láta upplýsingar af hendi skv. 1. málsl. nema fyrir liggi samþykki hins skráða.

Mig langar að ræða aðeins ástæður þessa og útskýra fyrirkomulagið vegna þess að það fer ekki á milli mála að meðlagsgreiðandi, foreldri sem er gert skylt að greiða meðlag með barni sínu, kemst ekki hjá því nema í undantekningartilvikum. Það skal ekki innheimta meðlag hjá þeim sem situr í afplánun og svo er Innheimtustofnun með heimild til að líta til mjög erfiðra félagslegra aðstæðna þegar kemur að innheimtu meðlags. Það gerir það ekki að verkum að viðkomandi verði algerlega undanþeginn meðlagsskyldu en Innheimtustofnun skal í innheimtuaðgerðum sínum taka tillit til mjög erfiðra félagslegra aðstæðna. Hvort tveggja eru ívilnandi aðgerðir fyrir meðlagsgreiðanda og með tillögu meiri hlutans og því frumvarpi sem við erum að fara að greiða atkvæði um á eftir er Innheimtustofnun sveitarfélaga veitt heimild til að biðja þessar tvær stofnanir, Fangelsismálastofnun og þá félagsþjónustu allra sveitarfélaga á landinu, um mjög persónulegar upplýsingar um alla meðlagsgreiðendur á landinu. Við getum alveg séð fyrir okkur tilvik þar sem foreldri, sem er jafnframt meðlagsgreiðandi, kjósi að fá að afplána sína refsingu án þess að allra augu beinist að því, vill bara fá að greiða sitt meðlag og ekki vera undanskilinn því. Slíkar aðstæður kunna að vera uppi sem og þær aðstæður, og er alls ekki ólíklegt, að meðlagsgreiðandi — segjum sem svo að um sé að ræða lítið sveitarfélag úti á landi — vilji mögulega ekki að allir starfsmenn bæjarskrifstofu eða sveitarstjórnarskrifstofu viti af meðlagsgreiðslunni, viti af því að viðkomandi eigi að greiða meðlag með barni sem viðkomandi býr ekki með. Þetta eru upplýsingar sem við í minni hlutanum teljum að einstaklingur eigi að fá að ráða sjálfur hvort eru sóttar.

Eins og ég sagði áðan eru báðar aðgerðirnar, þ.e. að kalla eftir félagslegum upplýsingum og hvort viðkomandi er í afplánun, gerðar í þágu meðlagsgreiðanda og þess vegna liggur fyrir að vilji meðlagsgreiðandi fá að komast undan því að þurfa að greiða meðlagið eða fá einhvers konar tilslökun kemur það til af því að viðkomandi óskar eftir því. Hann er að biðja um tilslökun frá þessari lögbundnu skyldu sinni að greiða meðlag með barni eða börnum sínum.

Við upphaf afplánunar refsivistar fara allir fangar í viðtal og þar kemur í ljós hvort viðkomandi á börn, hvort viðkomandi á að greiða meðlag o.s.frv. Í því viðtali er hægðarleikur að fá fram samþykki, að viðkomandi undirriti einfaldlega samþykki sitt fyrir því að Innheimtustofnun megi kalla eftir þessum upplýsingum hjá fangelsismálayfirvöldum. Þetta viðtal á sér alltaf stað. Ef viðkomandi vill ekki veita þær upplýsingar fær viðkomandi heldur ekki undanþágu frá því að greiða meðlag, þannig að þá er það bara einstaklingurinn sem er í afplánun sem velur það, sem ákveður hvort tveggja, að fá ekki undanþágu frá greiðslunni sem og velur það að bera ekki þær upplýsingar áfram, fær að vera með þetta svona tiltölulega prívat að hann eða hún er í afplánun. Það eru að mati okkar í minni hlutanum það viðkvæmar persónuupplýsingar að viðkomandi einstaklingur á að fá að ráða því hverjir fá upplýsingar um það.

Það sama og ég hef áður komið inn á varðandi erfiðar félagslegar aðstæður, af hvaða meiði sem þær kunna að vera, ef viðkomandi er í slíkum aðstæðum óskar eftir því við Innheimtustofnun að þurfa ekki að greiða meðlagið og gefur þá heimild fyrir því að kallað verði eftir þessum upplýsingum en ekki þannig að Innheimtustofnun hafi bara heimild til að leita þeirra upplýsinga um alla meðlagsgreiðendur á Íslandi. Það er bara að okkar mati allt of víðtækt.

Þess vegna leggjum við til áðurnefnda breytingu, að við 2. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skulu Fangelsismálastofnun og sveitarfélög ekki láta upplýsingar af hendi skv. 1. málsl. nema fyrir liggi samþykki hins skráða.

Eftir sem áður skal Innheimtustofnun fá upplýsingar um laun og launagreiðendur eins og alltaf hefur verið.