149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

landgræðsla.

232. mál
[11:39]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg):

Herra forseti. Ég geri grein fyrir nefndaráliti frá hv. umhverfis- og samgöngunefnd um frumvarp til laga um landgræðslu, þetta nýja frumvarp.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund 11 gesti og ég ætla að vísa til þeirra nafna í álitinu sjálfu. Einnig komu fram 12 umsagnir frá jafn mörgum aðilum og ég ætla ekki að lesa upp þá romsu heldur fara yfir meginatriði málsins.

Með frumvarpi þessu eru eldri lög nr. 17/1965, um landvernd, felld úr gildi og í nýju frumvarpi er skerpt á markmiðum laganna, m.a. með hliðsjón af nýjum áskorunum. Fjallað er um að hverju beri að stefna í vernd og sjálfbærri nýtingu jarðvegs og gróðurs og endurheimt vistkerfa. Gert er ráð fyrir að á fimm ára fresti gefi ráðherra út landgræðsluáætlanir til tíu ára í senn. Einnig er lagt til að unnar verði svæðisáætlanir sem draga fram sérstöðu og áherslur eftir landshlutum. Til að tryggja sem best sjálfbæra nýtingu lands er gert ráð fyrir að reglulega fari fram mat á ástandi lands og árangri landgræðslustarfs, að sett skuli viðmið um sjálfbæra landnýtingu og að unnin skuli áætlun um úrbætur þar sem landnýting er ekki sjálfbær. Lagt er til ákvæði um að leiði framkvæmdir eða landnýting til umtalsverðs rasks á vistkerfum eða gróðri og jarðvegi skuli bæta fyrir það með endurheimt sambærilegra vistkerfa. Enn fremur er lagt til að kveðið verði skýrt á um hlutverk Landgræðslunnar við umsjón lands vegna landgræðslu, annars vegar lands í eigu ríkisins og hins vegar lands í einkaeigu sem ríkið hefur umsjón með samkvæmt samkomulagi við eigendur.

Markmið frumvarpsins er að vernda, endurheimta og bæta þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands.

Skemmst er frá því að segja að fyrir nefndinni kom fram almenn ánægja með að lög um landgræðslu væru uppfærð þar sem mikil þörf væri á að endurnýja löggjöfina. Þau sjónarmið komu fram fyrir nefndinni að rétt væri að setja heildstæð lög um jarðvegs- og gróðurvernd. Nefndin bendir á að frumvarp þetta hefur verið lengi í undirbúningi enda tengist landgræðsla mörgum málaflokkum, m.a. búfjárrækt, náttúruvernd, málefni sveitarfélaga og ferðaþjónustu. Með lögunum eru gerðar margvíslegar úrbætur á eldri lögum en ekki ráðist í að gera neinar grundvallarbreytingar á ákvæðum laga sem varða t.d. landbúnað, svo sem á sviði beitarstjórnunar, né heldur til sameiningar landgræðslu- og skógræktarlaga. Sé vilji til slíkra breytinga í samfélaginu þarf víðtæka umræðu innan þings og utan og stefnumótun áður en unnt er að gera þær.

Fyrir nefndinni komu fram þau sjónarmið — nú ætla ég að gera grein fyrir helstu efnisbreytingum í áliti umhverfis- og samgöngunefndar og nokkrar athugasemdir eða hvatningu frá henni — að nauðsynlegt væri að stefnt skyldi að reglubundinni vöktun á ástandi lands til að stuðla að vernd og sjálfbærri nýtingu. Var þar m.a. vísað til samkomulags, svokallaðrar Grólindar, um mat á gróðurauðlindum sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Bændasamtök Íslands, Landgræðsla ríkisins og Landssamtök sauðfjárbænda standa að. Samkomulagið hefur að markmiði annars vegar að skila reglubundnu heildarmati á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins og gera grein fyrir breytingum þar á og hins vegar að þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu gróður- og jarðvegsauðlinda landsins. Nefndin tekur undir að eðlilegt sé að bæta þessu við markmiðasetningu 2. gr. enda mikilvægt að hafa góða yfirsýn yfir ástand lands svo unnt sé að bregðast við með viðeigandi ráðstöfunum þegar þess gerist þörf. Nefndin leggur því til að nýjum tölulið verði bætt við 2. gr. sem kveði á um reglubundna vöktun.

Í 5. gr. frumvarpsins segir að ráðherra fari með yfirstjórn landgræðslumála en að Landgræðslan hafi eftirlit með framkvæmd og annist daglega stjórnsýslu á því sviði sem ákvæði frumvarpsins nái til. Önnur hlutverk stofnunarinnar séu m.a. að hvetja til þátttöku í landgræðslu. Nefndinni var bent á að gott væri að skerpa á því hlutverki stofnunarinnar að vinna að landgræðslu ásamt því að hvetja til hennar. Nefndin tekur undir framangreint og leggur því til breytingu á d-lið 5. gr. frumvarpsins til samræmis.

Í 6. gr., sem fjallar um landgræðsluáætlun, kemur fram að fimm manna verkefnisstjórn hefur yfirumsjón með gerð áætlunarinnar. Nefndin áréttar að hafa beri sem skilvirkast samráð við haghafa og fagaðila við gerð hennar. Nefndin taldi rétt að bæta inn málslið í 1. mgr. 6. gr. um landgræðsluáætlun, þar sem skerpt yrði á markmiðum með gerð landgræðsluáætlana og samspili við jarðvegsvernd með því að ítreka að slík áætlun stuðli að framförum í mati á jarðvegsvernd.

Fyrir nefndinni komu fram þau sjónarmið að nauðsynlegt væri að skerpa á ákvæðum um sjálfbæra landnýtingu þannig að krafa yrði gerð um endurheimt í þeim tilvikum þar sem nýting hefur gengið á landið. Jafnframt var bent á að taka þyrfti tillit til mismunandi landnytja við mat á nýtingu og ástandi lands. Nefndin tekur undir að sjálfbær landnýting er ein helsta undirstaða landgræðslu og endurheimtar vistkerfa og landgæða. Nefndin leggur því til breytingar á 9. og 10. gr. frumvarpsins sem miða að því að koma til móts við framangreindar ábendingar.

Í 12. gr. frumvarpsins er fjallað um ósjálfbæra landnýtingu og landbótaáætlun. Í 3. mgr. ákvæðisins segir að ef rekja megi ósjálfbæra landnýtingu til ágangs vegna lausagöngu búfjár skuli Landgræðslan óska eftir því við viðkomandi sveitarstjórn að hún ákveði að hlutaðeigandi umráðamönnum búfjár verði gert skylt að hafa það í vörslu allt árið eða tiltekinn hluta ársins. Nefndin telur mikilvægt að sveitarstjórnir hafi ríkt samráð við Landgræðsluna í slíkum tilfellum og leggur því til breytingu á 12. gr. þess efnis.

Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að orðalagið „sem geta haft áhrif á gróður og jarðveg“ í 1. mgr. 13. gr. væri of almennt og auðvelt að túlka þannig að það næði í raun til flestra framkvæmda og væri því of íþyngjandi. Nefndin leggur áherslu á að flækjustig í löggjöf sem lýtur að skipulagsmálum verði ekki aukið og leggur því til breytingu á 13. gr. frumvarpsins. Þá leggur nefndin sérstaka áherslu á að við endurskoðun náttúruverndarlaga komi inn almennt ákvæði um mótvægisaðgerðir þegar um rask á vistkerfum er að ræða.

Í 14. gr. frumvarpsins eru ákvæði um stöðvun eyðingar og endurheimt vistkerfa. Nefndinni var bent á að brýnt væri að hægt væri, í undantekningartilvikum, að taka land í umsjá ríkisins þar sem endurheimtar er þörf. Nefndin tekur undir framangreint og leggur til breytingar á 14. gr. þar sem kveðið er á um umráð Landgræðslunnar yfir slíkum svæðum eftir atvikum.

Með frumvarpinu er lagt til að lög um varnir gegn landbroti verði felld brott en þess í stað komi fimm ákvæði í VI. kafla frumvarpsins. Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að þörf væri á skýrari forgangsröðun verkefna er varða varnir gegn landbroti. Kveðið er á um forgangsröðun verkefna vegna landbrots í 15. gr. frumvarpsins. Landgræðsla ríkisins benti á mikilvægi þess að löggjafinn gæfi skýr fyrirmæli um hvernig forgangsraða ætti verkefnum við landbrot sem stofnunin gæti farið eftir. Nefndin tekur undir þau sjónarmið og áréttar að við forgangsröðun þurfi að líta til þess meginmarkmiðs frumvarpsins að stöðva eyðingu jarðvegs og gróðurs. Nefndin leggur því til breytingu á 15. gr. frumvarpsins þannig að skýrt komi fram að ræktað land, nytjalönd og annað gróðurlendi skuli að jafnaði njóta forgangs við röðun varnarverkefna gegn landbroti af völdum straumvatns því til samræmis.

Nefndinni var bent á að þörf væri á að hafa samráð við sveitarfélög þegar unnið er að vörnum gegn landbroti og er tekið til þess í nokkrum greinum frumvarpsins sem bera númer frá 17 og áfram.

Fyrir nefndinni kom fram gagnrýni á fjárhæð dagsekta sem samkvæmt 24. gr. er heimilt að leggja á ef aðili sinnir ekki fyrirmælum um úrbætur innan tiltekins frests. Hámark dagsekta er 500.000 kr. á dag. Nefndin bendir á að áður en til álagningar dagsekta kemur þarf að vera búið að veita áminningu og gera kröfu um úrbætur þar sem veittur er hæfilegur frestur til úrbóta. Þá bendir nefndin á að þvingunarúrræði annarra laga ganga ákvæðinu framar og líkt og fram kemur í greinargerð geta þar m.a. komið til álita þvingunarúrræði í lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl., nr. 6/1986, og lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013. Þvingunarúrræði Landgræðslunnar munu eingöngu koma til skoðunar í þeim tilvikum sem þvingunarúrræði annarra laga gilda ekki.

Ég hef gert grein fyrir helstu breytingum og áherslum sem koma frá hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Það eru 14 formlegar breytingartillögur sem gerðar hafa verið við frumvarpið. Sumar varða orðalag en aðrar snúa fremur að efnisatriðum og það hef ég þegar fjallað um.

Herra forseti. Að þessu lesnu er augljóst að nefndin telur frumvarp þetta til bóta og leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem eru lagðar til í sérstöku þingskjali, þær 14 sem ég hef nefnt.

Björn Leví Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur þessu áliti.

Karl Gauti Hjaltason skrifar undir álit þetta með fyrirvara sem lýtur að fjárhæð dagsekta í 24. gr., lögfestingu sektarvalds samkvæmt 25. gr. og þeirri útvíkkun verkefna Landgræðslunnar sem kveðið er á um í 23. gr.

Undir álitið rita 13. desember 2018 Jón Gunnarsson, 1. varaformaður, Ari Trausti Guðmundsson, framsögumaður og 2. varaformaður, Hanna Katrín Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Jón Þór Þorvaldsson, Karl Gauti Hjaltason, með fyrrnefndum fyrirvara, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.