149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

landgræðsla.

232. mál
[11:51]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég kem hér fyrst og fremst til að þakka hv. framsögumanni, Ara Trausta Guðmundssyni, fyrir flutninginn á áliti meiri hlutans og til að lýsa yfir stuðningi við meirihlutaálitið. Með frumvarpinu um landgræðslu verða mjög mikilvæg tímamót þar sem það kemur í stað 50 ára gamalla laga um landgræðslu og jafnframt í stað laga um vinnu gegn landbroti.

Landgræðsla á Íslandi er mjög mikilvæg fyrir okkur til að varðveita þá auðlind sem jarðvegur og gróður er í landinu, en landgræðslan er líka mikilvæg á heimsvísu því að hér höfum við í gegnum árin byggt upp þekkingu sem nýtist annars staðar í heiminum þar sem landeyðing er víða mjög mikið vandamál, sérstaklega í Afríku svo sú heimsálfa sé nefnd, en líka víða annars staðar, Mið-Asíu og víðar. En hingað hafa þessar þjóðir einmitt sótt þekkingu í gegnum landgræðsluskóla Sameinuðu þjóðanna. Það er víða, m.a. hjá Sameinuðu þjóðunum sem er sú stofnun sem vinnur gegn landeyðingu í heiminum, horft mjög til þess hvernig við Íslendingar nálgumst þessi mál. Því fékk ég að kynnast með samtölum í heimsókn minni til þeirra í haust. En landgræðslan er ekki bara til að vernda auðlindina, jarðveg og gróður, landgræðsla hefur líka mjög mikla þýðingu í loftslagsmálum, því að þegar jarðvegur fýkur losnar líka mjög mikið af kolefni út í andrúmsloftið, kolefni sem er bundið í jarðvegi í gróðurleifum.

Mig langar aðeins að fletta í gegnum frumvarpið. Fyrst eru sett fram markmið og orðskýringar. Þá er II. kafli um stjórn landgræðslumála og áætlanir. Þar er landgræðsluáætlun lykiltækið til að skipuleggja landgræðslu og til að samræma landgræðslu öðrum áætlunum í náttúruvernd, áætlunum í skógrækt, skipulagsáætlunum, samgönguáætlun og fleiri áætlunum. Þess vegna er mikilvægt að um þær áætlanir sé víðtækt samráð. En í þessari áætlun er líka hægt að setja fram mismunandi markmið í endurheimt vistkerfa, því að markmiðið þarf að tengjast því hvernig og hvort nýta á landið eftir að það hefur verið grætt upp. Stundum er einfaldlega nóg að binda jarðveg með einhverjum hætti og láta síðan náttúruna um framvindu gróðurs. Í öðrum tilfellum gæti markmiðið verið að byggja upp beitiland, byggja upp skóg sem getur varist t.d. eldgosum og öskufalli, og svo mætti lengi telja. Síðan getur verið markmið að byggja upp land sem þolir ágang og umgengni fólks.

Eins og hv. framsögumaður nefndarinnar kom inn á komu fram þau sjónarmið að öll lög sem lúta að verndun auðlinda á landi ættu að vera í einum lagabálki. Ég get að nokkru leyti tekið undir þau sjónarmið og hef oft gert það. En hins vegar er það langtímaverkefni og ég get líka skilið sjónarmið sem mæla gegn því þar sem við þurfum líka að hugsa um lögin þannig að fólk, a.m.k. fólk sem vinnur eftir lögunum, eigi auðvelt með að nálgast þau, eigi auðvelt með að finna lög um landgræðslu, lög um náttúruvernd eða lög um skógrækt. Langir og stórir lagabálkar geta oft verið þyngri aflestrar, erfiðara að finna það sem leitað er að. En það er samt sem áður mjög mikilvægt að Alþingi sé meðvitað um mikilvægi þess að þeir lagabálkar um skógrækt, um landgræðslu, um náttúruvernd og annað sem snýr að umhverfismálum, þ.e. að gott samræmi sé þar, það séu ekki endurtekningar og skaranir á milli laganna en þau nálgist hvert annað þannig að skýr heildarmynd skapist, þó svo að bálkarnir væru a.m.k. enn um sinn hver í sínu lagi.

Síðan aftur í frumvarpið eins og það er lagt fram. III. kaflinn er um stuðning við landgræðslu.

IV. kaflinn fjallar um sjálfbæra landnýtingu. Þar er verið að fikra sig áfram, eftir því sem tækninni fleygir fram, við að meta gæði lands og áhrif ágangs á land, áhrif beitar og þolmörk ferðamannastaða o.s.frv. Þarna er rými til að fikra sig áfram í því mati og stjórnsýslu sem að því lýtur.

V. kafli er um vernd, endurheimt og eflingu vistkerfa og VI. kaflinn er um varnir gegn landbroti.

VII. kaflinn er um samninga, afhendingu og sölu á landgræðslusvæðum. Framsögumaður kom inn á álitaefni sem sneru að því áðan.

Að lokum er VIII. kaflinn um ýmis ákvæði, svo sem gildistöku og breytingar sem verði samhliða á öðrum lögum.

Eins og ég sagði í upphafi styð ég frumvarpið og álit umhverfis- og samgöngunefndar. Mér finnst þetta vera mjög mikilvæg tímamót sem eru að verða núna þegar ný lög um landgræðslu verða samþykkt.