149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.

[13:38]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að gera meira en að svara fyrirspurninni og taka þátt í umræðunni. En ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir að óska eftir þessari umræðu um atvinnustefnu á opinberum ferðamannastöðum með áherslu á aðgangsstýringar, úthlutun takmarkaðra gæða, sjálfbæra uppbyggingu, öryggis- og gæðakröfur o.fl.

Á undanförnum árum hefur megináhersla á ferðamannastöðunum verið á uppbyggingu innviða til að vernda náttúru og bæta öryggi og upplifun. Þetta þekkjum við, þetta hefur verið gert með Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og nú síðast einnig með nýrri langtímalandsáætlun um uppbyggingu í þágu náttúruverndar vegna ferðamennsku. Þetta hefur skipt sköpum en verkinu er ekki lokið og gera þarf enn betur. Því er gert ráð fyrir yfir milljarði króna á ári í þessi verkefni á næstu árum.

Samræmd aðgangsstýring að ferðamannastöðum í opinberri eigu eða umsjón er ekki til staðar sem stendur enda er meginreglan sú að almenningi er heimil för um landið samkvæmt ákvæðum náttúruverndarlaga um almannarétt.

Hvað varðar fjöldatakmarkanir má segja að ákveðin tæki hafi verið sett í verkfærakistuna þó að ekki sé farið að beita þeim. Með breytingum á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð árið 2016 varð atvinnustarfsemi innan þjóðgarðsins leyfisskyld og með breytingu á umferðarlögum árið 2017 komu bílastæðagjöld til sögunnar á nokkrum fjölsóttum ferðamannastöðum, sem væri hægt að sjá fyrir sér að yrðu nýtt til að stýra álagi með skilvirkari hætti en nú er gert.

Ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að ganga lengra í stýringu, bæði út frá verndar- og nýtingarsjónarmiðum í ljósi stóraukinnar umferðar ferðamanna. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að það er engin ein ríkislausn og ég vildi fá að taka undir með hv. þingmanni hvað það varðar. Ég vil nefna það sérstaklega að það er engin ein ríkislausn í þessum verkfærakistum, það er engin ein ríkislausn í gjaldtöku eða stýringum. Þetta eru fjölmargar leiðir með fjölmörgum verkfærum. Og ég vil taka undir með hv. þingmanni líka að við verðum auðvitað að geta hreyft okkur og komist áfram og þetta er allt tekið í skrefum. Ef við ætlum að gleypa þetta allt í einu lagi þá munum við þurfa að bíða lengi. Þess vegna hef ég verið talsmaður þess að reyna að leysa ákveðin verkefni, þau eru að koma upp á meðan við erum að vinna að málum, vegna þess að annars er alltaf eftir einhverju öðru að bíða sem getur haft áhrif á stefnumótun og annað slíkt.

Það stendur yfir mikilvæg vinna á þessu sviði, t.d. endurskoðun á ákvæðum um almannarétt á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og vinna á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins við mótun tillagna um sérleyfissamninga vegna nýtingar á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni, auk álagsverkefnisins sem nú er unnið að og ég vík að rétt á eftir.

Með vel skilgreindri umgjörð um sérleyfissamninga gæti ríkið öðlast betri möguleika til að stýra uppbyggingu með skilvirkum og gagnsæjum hætti þar sem það á við og slíkir samningar gætu verið til þess fallnir að vinna að markmiðum stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu ferðamannastaða, bætt öryggi og upplifun ferðafólks, aukin gæði og fleiri markmið. Þess má geta að sérleyfi hafa heppnast vel sem verndar- og stýringartæki á Nýja-Sjálandi og hafa stutt við vöxt ferðaþjónustunnar þar í landi. Augljóst er að æskilegt væri að ná fram sem mestu samræmi á milli þessarar vinnu og þeirra einstöku svæða sem eru á sama tíma að móta sér atvinnustefnu líkt og Vatnajökulsþjóðgarður er að gera og bind ég vonir við að það verði hægt. Nýútkomnar áfangastaðaáætlanir landshlutanna eru síðan mikilvægt innlegg í stefnumótun ferðaþjónustunnar og vonandi eigum við eftir að sjá þær endurspeglast í skipulagsáætlunum sveitarfélaga. Skipulag er eitt áhrifaríkasta stjórntækið til að skilgreina og ná utan um ólík markmið um auðlindanýtingu, atvinnuþróun og umhverfisvernd. Tryggja þarf að gert sé ráð fyrir ferðaþjónustu í skipulagi lands með kerfisbundnum hætti, skilgreina hvaða svæði eigi að geta tekið á móti miklum fjölda ferðamanna og hvaða svæðum verði haldið utan alfaraleiða.

Þess má geta að ég nefndi hér í þessum sal ekki fyrir alls löngu að til stendur að skilgreina fyrirmyndarferðamannastaði, sem er eitt af verkefnum Vegvísis í ferðaþjónustu, og það mál er nú til skoðunar í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Það gefur okkur tækifæri til að útfæra margt af því sem hér hefur verið nefnt, koma því í vinnslu og þróa síðan áfram.

Þá er einnig vert að nefna mikilvægt verkefni á vegum Stjórnstöðvar ferðamála, sem er álagsmat umhverfis, innviða og samfélags gagnvart fjölda ferðamanna. Niðurstaða fyrsta áfanga þessa viðamikla verkefnis var kynnt á opnum fundi í Hörpu nú í morgun. Búið er að skilgreina á sjöunda tug mælikvarða sem nú er unnið að því að gildissetja. Í kjölfarið verður framkvæmt álagsmat sem mun undirbyggja nýja ferðamálastefnu á landsvísu, en sem mun líka í framhaldinu nýtast við mat á þolmörkum einstakra ferðamannasvæða.

Svo að lokum langar mig að nefna líka ný lög um Ferðamálastofu, sem taka gildi um áramót, þar sem öllum sem selja skipulagðar ferðir á Íslandi verður gert skylt að setja sér öryggisáætlanir og mun Ferðamálastofa hafa eftirlit með því.