atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir að setja þetta mál á dagskrá, enda mál sem rætt hefur verið lengi og mjög mikið í íslensku samfélagi og enn virðist ekki vera nein niðurstaða að komast í málið. Í dag er staðan sú að Framkvæmdasjóður ferðamanna er leið til uppbyggingar en enn er óleyst hvernig eigi að standa að og styðja við rekstur þessara sömu áfangastaða. Má þar nefna til að mynda þá áfangastaði sem eru í umsjá sveitarfélaganna en þau fá því miður ekki að njóta tekna af þeim sömu áfangastöðum nema í litlum mæli.
Herra forseti. Við Íslendingar erum stundum upptekin af því að finna einföldustu og fljótlegustu lausnina en ég held að því miður sé það ekki endilega heppilegasta leiðin í þessu tilviki. Það er auðvitað hægt að fara margar leiðir þegar kemur að gjaldtöku og mættum við t.d. líta til lausna eins og notaðar eru í Bandaríkjunum og Kanada til að stýra aðgengi og afla tekna. Þannig væri heppilegast að byggja eitt stjórnkerfi sem gæti gert hvort tveggja, þ.e. að stýra aðgengi og afla tekna. Byggja mætti upp slíkt kerfi í áföngum en að lokum yrði til kerfi sem gæti horft til sjálfbærni, þolmarka og tekjuöflunar, auk þess að tryggja jákvæða upplifun gesta og lágmarka neikvæð áhrif þeirra sömuleiðis á áfangastaði.
Í því samhengi dettur mér í hug nokkuð myndræn lýsing sem ég heyrði nýlega á hugtakinu sjálfbærni, þ.e. að sjálfbærni megi líkja við þriggja fóta stól. Ef ekki er gætt að öllum þáttum sjálfbærninnar, efnahagslegum, umhverfislegum og samfélagslegum, stendur stóllinn augljóslega ekki. Það er nokkuð sem við þurfum ávallt að hafa í huga í þingsal, nánast sama hvað við erum að ræða, hvernig við tryggjum alla þætti sjálfbærni og það er að sjálfsögðu ekki síst þegar við erum að ræða um ferðaþjónustu og nýtingu náttúruauðlinda.