149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.

[13:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Allt tal um uppbyggingu á ferðamannastöðum í dag er velkomið. Loksins, mætti segja. Við erum að bregðast við allt of seint. Fyrsta skrefið í allri uppbyggingu ferðamannastaða er mjög einfalt; landvarsla, virk vöktun og möguleiki á skjótum viðbrögðum við hinum ýmsu uppákomum sem upp geta komið.

Það hefur komið fram í máli ýmissa aðila að landvarsla sé ein mikilvægasta undirstaðan fyrir sjálfbæra nýtingu á ferðamannastöðum. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða átti í smávandræðum, allur peningurinn sem var settur í hann áður gekk ekki út út af ýmsum bjúrókratískum hindrunum sem komu í veg fyrir að sú stefna sem var sett upp varðandi þann sjóð heppnaðist. Það var náttúrlega mjög óheppilegt að því leyti til. Það er pínulítið kaldhæðnislegt að hér sé talað um að finna ekki einmitt einhverja eina ríkislausn sem henti því sú ríkislausn sem var reynd heppnaðist ekki út af bjúrókratískum vandamálum sem ríkið í rauninni setti sjálfu sér, ef má orða það þannig. Það voru tæknilegar hindranir sem gerðu það erfitt að taka þátt í því að þessi lausn, sem að miklu leyti er góð hugmynd, heppnaðist.

Ég fagna einfaldlega allri stefnumörkun og uppbyggingu á þessum vettvangi og, eins og ég segi, þótt fyrr hefði verið.