149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.

[13:56]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir þessa umræðu. Ég vil taka þetta út frá öðru sjónarhorni. Ég spyr mig enn með ferðamannastaðina: Af hverju erum við ekki farin að taka komugjöld? Af hverju erum við ekki byrjuð að byggja upp miklu betri aðstöðu? En það sem ég hef meiri áhyggjur af er aðgangur hreyfihamlaðra að ferðamannastöðum. Því miður er lenskan sú að það vill alltaf gleymast. Það verður alltaf aftast og það er líka áhyggjuefni í því samhengi að það virðist meira að segja vera tilhneiging til þess að brjóta lög og reglur um aðgengi fatlaðra, sérstaklega fólks í hjólastólum, að ákveðnum stöðum, á ferðamannastöðum, á sjóböðum og annars staðar. Það sem kannski skelfir mann oft er að þetta lítur ofboðslega vel út, það er eins og allt sé til staðar fyrir fatlaða á ferðamannastöðum, en það gleymist að fá þá fötluðu einstaklinga sem eiga að nota aðstöðuna til að prófa hvort hlutirnir virki. Í mörgum tilfellum virka þeir ekki.

Við verðum að átta okkur á því að þegar við erum að fá ferðamenn á ferðamannastaði þá erum við ekki bara að fá einsleitan hóp. Við erum ekki bara að fá fullfrískt fólk. Við erum að fá alla flóruna. Okkur ber skylda til að sjá til þess að allir hafi tök á því að nýta sér náttúruna sem vilja, ekki bara þeir útvöldu sem geta farið á tveimur jafnfljótum og eiga auðvelt með að komast yfir heldur líka hinir sem eru í hjólastól eða á hækjum eða þurfa sérstaka aðstoð til þess að geta komist að og notið náttúrunnar. Þeir þurfa að fá að vera með.