atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.
Herra forseti. Það er sannarlega mikilvægt að á Íslandi verði sett ein samræmd stefna um atvinnustefnu, þ.e. um gjaldtöku. Ef fara á þá leið held ég að það væri þrátt fyrir allt æskilegast að einn aðili bæri ábyrgð á slíku kerfi, enda yrði það í eðli sínu alltaf nokkuð flókið. En mikilvægt er að það sé skýrt hver ber ábyrgð á að halda utan um það og sömuleiðis þarf að vera skýrt að tekjurnar fari allar til áfangastaðanna þar sem þeirra er aflað. Má í því samhengi horfa til reynslunnar af þjóðgörðunum í Bandaríkjunum þar sem tekjurnar renna allar beint til garðanna sjálfra og það sem umfram er fer til þeirra áfangastaða og þjóðgarða sem afla minni tekna.
Hér væri þá nauðsynlegt til að byrja með að ríkið kæmi áfram með myndarlegum og myndarlegri hætti að uppbyggingu góðra og vandaðra innviða fyrir áfangastaði, enda er staðan þannig í dag að töluvert fjármagn þarf enn til að gera þá ásættanlega.
Margt fleira þarf þó einnig að skoða eins og til að mynda hvernig taka eigi á gjaldtöku á áfangastöðum í einkaeigu, eins og nefnt hefur verið hér.
Annað sem við verðum að horfast í augu við er að eðlilegt geti verið að takmarka aðgengi að einstökum áfangastöðum, bæði til að standa vörð um einstaka náttúru en einnig til að tryggja upplifun gesta. Í því samhengi langar mig til að benda til að mynda á Grand Canyon í Bandaríkjunum, en þar koma um 5 milljónir gesta á ári hverju, sem þýðir þúsundir gesta á degi hverjum. Aðgengi er fyrir alla gegn greiðslu, en hins vegar til að fá að ganga niður í gilið og gista á botni þess þarf sérstakt leyfi með nokkuð góðum fyrirvara og eru þær reglur settar einmitt til að gæta bæði að náttúrunni og til að tryggja upplifun gesta. Sambærilegar leiðir eru farnar úti um allan heim.
Herra forseti. Það hafa sannarlega orðið miklar breytingar á íslensku atvinnulífi og raun í samfélaginu eins og það leggur sig á stuttum tíma. Eins og oft hefur komið fram er ferðaþjónustan orðin okkar stærsta atvinnugrein. Þessar breytingar fela í sér bæði mörg tækifæri, en einnig ógnir. En eins og við Íslendingar ættum að þekkja manna best er ekki æskilegt að hafa atvinnustefnu sem byggir á því að við setjum öll eggin okkar í sömu körfuna, því ef þau brotna er það almenningur sem þarf að borga brúsann.