atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.
Forseti. Mig langar að koma inn á aðeins aðra þætti en gert hefur verið í þessari ágætu umræðu hingað til. Mér finnst svo sem að við öll hér, hv. þingmenn, séum nokkuð sammála. Ellefta ræðan í svona ræðusúpu bætir kannski ekki sérstaklega miklu við í því að taka undir það sem við virðumst nokkuð sammála um.
Mig langar að nálgast þetta mál, þ.e. opinbera ferðamannastaði, út frá loftslagsmálum. Þar sem ég er sjálfhverfur maður rifja ég upp að ég er búinn að senda inn fyrirspurn til í það minnsta tveggja ráðherra og sú þriðja er væntanleg til hæstv. ráðherra ferðamála sem snýr að umferð atvinnutækja á svæðum í umsjá opinberra aðila, í þessu tilviki á opinberum ferðamannastöðum. Það er morgunljóst að við þurfum að stíga stór skref þegar kemur að orkuskiptum í samgöngum og til að vinna gegn loftslagsvánni. Ég held að hið opinbera sé þar í mjög styrkri stöðu að geta t.d. sett stefnu, ekki bara þá ágætu stefnu sem við höfum sett um að ekki megi nýskrá bifreiðar keyrðar á jarðefnaeldsneyti eftir 2030 heldur jafnvel segja að eftir ákveðinn árafjölda komi rútur, þjónustubifreiðar og atvinnutæki einfaldlega ekki inn á þessi opinberu svæði nema þau séu keyrð áfram á vistvænu eldsneyti.
Slíka stefnu þyrfti alltaf að setja nokkur ár fram í tímann til að atvinnurekendur, fyrirtækin sem sjá um þennan rekstur, hefðu nægan tíma til að laga sig að þessari breyttu stefnu. Töfratöluna hvað þau ár varðar er ég ekki með, það þyrfti að gera það í samráði við geirann, en ég held að svona skref væru mjög góð í að byggja upp þá góðu stefnu sem við höfum varðandi loftslagsmálin. Þarna höfum við tæki til þess að stíga framfaraskref í samvinnu við geirann.