149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.

[14:06]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Það er kannski ekki mjög mörgu við að bæta, að hluta til í ljósi þess að umræðan á þessum tímapunkti hefði kannski átt betur heima sem munnleg fyrirspurn út af þessum mismun á forminu. Það eru náttúrlega mörg atriði sem þarf að ræða í þessu, en mér finnst eins og málið sé í það góðum farvegi innan ráðuneytanna að það mætti kannski bíða með það þangað til tilteknar tillögur koma fram sem mætti ræða sérstaklega.

En til að koma samt að efninu erum við að tala um annars vegar það hvernig við rekum hreinlega fyrirbæri eins og þjóðgarða. Það er þannig að rekstrareiningar þurfa starfsfólk og þá þarf að meta þörfina út frá kröfum sem við gerum til gæða og öryggis og ræða það jafnvel í samvinnu við hagsmunaaðila og hins vegar þarf að fjármagna það að nægilega margt fólk sé til að vinna þau störf.

Kannski er helsta og merkasta markmiðið hjá starfsmönnum þjóðgarða og annarra opinberra ferðamannastaða að hlúa að náttúrunni og standa vörð um varúðarregluna. Ef þjóðgarður hefur t.d. ónógan mannafla til að geta staðið vörð um varúðarregluna og tryggja náttúruna til framtíðar er hlutverk þjóðgarðsins hreinlega ekki uppfyllt. Þetta er eitthvað sem ég býst við að verði tekið fyrir hjá nefnd um hálendisþjóðgarð og ég bíð í ofvæni eftir því að hálendisþjóðgarði verði komið á þannig að við getum farið að vinna í átt að því að leggja helming jarðarinnar til hliðar, ekki bara á Íslandi heldur víðar, fyrir náttúruna. Þá eru atriði eins og aðgangsstýringar sem koma inn ný. Mjúkar leiðir þar væru betri en harðar leiðir. Það er t.d. betra að reyna að stýra flugi víðar, miða markaðssetningu á fleiri staði og (Forseti hringir.) þess háttar. En eins og ég segi er búið að ræða þetta nokkuð vel og ég trúi því að þetta sé í ágætisfarvegi.