atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.
Virðulegur forseti. Við erum að tala um fjölfarna ferðamannastaði. Ég tel að við þurfum líka að tala um þá fámennu. Ég var á ferð um Vestfirði í sumar og mér blöskraði hversu oft lá við stórslysi vegna þess að ferðamenn voru að stoppa til að taka myndir af náttúrunni. Þeir eru komnir hingað til að taka myndir af náttúrunni en það voru engin útskot uppi á háheiðum þar sem var þverhnípi. Þar voru kannski tveir, þrír bílar og fullt af fólki sem þveraði veginn. Þarna er mjög einfalt að búa til aðstöðu þannig að ekki skapist hætta. Þess vegna verðum við að tryggja öryggi á fámennari stöðum og síðan þurfum við líka að sjá til þess að þegar þessir fjölmennu staðir eru byggðir upp séu mjög góðar aðstæður fyrir fatlaða eins og ég hef áður sagt og ítreka nú. Þar virðist oft misbrestur á. Samkvæmt nýföllnum dómi er t.d. ekki hægt að uppfylla byggingarreglugerð nema samningur Sameinuðu þjóðanna sé löggiltur.
Við verðum að passa að þegar verið er að gera einhverjar aðstæður fyrir fólk, sérstaklega þá sem þurfa hjálp við eins og fatlaðir einstaklingar, sé ekki hægt að brjóta reglur og lög bara vegna þess að það er ekki búið að samþykkja einhver önnur lög. Við verðum alltaf að passa að fara eftir þeim landslögum sem eru í gildi þannig að allir geti notið náttúrunnar óháð hreyfanleika og því lög og reglur séu virt.