149. löggjafarþing — 51. fundur,  14. des. 2018.

beiðni um fundarhlé.

[14:21]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill upplýsa að það er einhver misskilningur á ferð varðandi það mál. Það átti að koma skýrt fram í nefndum tölvupósti til allra þingflokksformanna að eingöngu væri óskað eftir að mæla fyrir málinu og koma því til nefndar. Það yrði ekki frekar aðhafst varðandi það mál fyrr en á þingi að afloknu jólahléi. — Þessum fundi er frestað í 20 mínútur.