149. löggjafarþing — 54. fundur, 21. jan. 2019.
framhaldsfundir Alþingis.
Forseti Íslands gjörir kunnugt:
„Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 21. janúar 2019 kl. 15.
Gjört á Bessastöðum, 17. janúar 2019.
Guðni Th. Jóhannesson.
_________________
Katrín Jakobsdóttir.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð í framhaldinu hv. þingmenn og forseta þings velkomna til starfa að nýju og hlakka til samstarfsins fram undan á komandi mánuðum.