149. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2019.

tollalög.

304. mál
[15:59]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005.

Efni frumvarpsins er tvíþætt, lýtur annars vegar að upplýsingagjöf um flutning fjármuna milli landa, en hins vegar svokallaðri VRA-vottun, vottun viðurkenndra rekstraraðila, sem ætlað er að stuðla að aukinni skilvirkni og öryggi við tollafgreiðslu vegna vöruflutninga. Sá þáttur sem snýr að upplýsingagjöf um flutning fjármuna milli landa er liður í viðbrögðum íslenskra stjórnvalda við tilmælum alþjóðlega framkvæmdahópsins FATF, Financial Action Task Force, í úttekt á vörnum Íslands gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem birt var í apríl á síðasta ári.

Það kom til umræðu í nefndinni að ákvæði 6. gr. frumvarpsins um vinnslu upplýsinga í tengslum við veitingu eða afturköllun VRA-vottunar gætu veitt tollstjóra svo víðtæka heimild til vinnslu persónuupplýsinga, eða legðu slíka skyldu á aðra opinbera aðila til að veita tollstjóra upplýsingar, að stangaðist á við ákvæði persónuverndarlaga.

Í umsögn til nefndarinnar, sem og á nefndarfundi, kom fram það mat Persónuverndar að þegar ákvæðið væri virt í samhengi við útskýringar í greinargerð frumvarpsins væri ekki tilefni til athugasemda af hálfu stofnunarinnar.

Að framangreindu virtu leggur nefndin því til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálit þetta rita sá er hér stendur, Óli Björn Kárason, og hv. þingmenn Þorsteinn Víglundsson, Brynjar Níelsson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Smári McCarthy.