149. löggjafarþing — 58. fundur,  29. jan. 2019.

Fiskistofa.

[13:55]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Eins og þingmaðurinn nefndi hefur skýrsla Ríkisendurskoðunar verið tekin til umfjöllunar í tveimur nefndum, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og atvinnuveganefnd. Ég óskaði eftir því við starfsmenn ráðuneytisins sem mættu til fundar við þessar ágætu nefndir að greina þeim frá áformum mínum um það með hvaða hætti ég vildi að niðurstöður skýrslurnar yrðu teknar til umfjöllunar. Ég vænti þess að það sé ágætissamstaða um þær hugmyndir sem þar hafa verið reifaðar því að þetta er viðfangsefni sem snertir ekki bara útgerðina, fiskvinnsluna, Fiskistofu eða einstakar stofnanir, þetta er samfélagslegt verkefni sem ótal aðilar þurfa að koma að, hvort heldur er Landhelgisgæslan, hafnir landsins, flutningsaðilar eða guð má vita hverjum þetta tengist.

Það eru örugglega ýmsar ástæður fyrir því að mál hafi ekki náð fram að ganga sem hefur verið unnið með í ráðuneytinu á vegum Fiskistofu. Ég ætla ekkert að draga fram á vettvanginn einhvern sökudólg eða láta mér detta eitthvað slíkt í hug. Verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er að greiða úr þeirri stöðu sem við sjáum birtast í úttekt Ríkisendurskoðunar og við verðum að horfa til framtíðar í þeim efnum. Það er alveg ljóst að það eru miklir hagsmunir undir af allra hálfu sem þessu máli tengjast, hvort heldur er ríkið, einstakar stofnanir eða einstök fyrirtæki, þó að allir reyni að gæta að sínu. Það er verkefni alls þessa hóps að skila ráðuneytinu tillögum til úrbóta, væntanlega á grunni þeirrar vinnu sem ég hyggst setja af stað, og ég vænti góðs samstarfs við alla aðila þess máls.