149. löggjafarþing — 58. fundur,  29. jan. 2019.

skýrsla um áhrif hvala á lífríki sjávar.

[14:13]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Eins og Hafrannsóknastofnun hefur sagt í þeirri umræðu sem staðið hefur frá því að Hagfræðistofnun skilaði af sér skýrslunni, hafa sérfræðingar okkar á þessu sviði innan Hafrannsóknastofnunar margítrekað að spurningar varðandi afránið eru stærðir sem mjög erfitt er svara. Vitneskjan um samspil þessara þátta í lífríkinu er af mjög skornum skammti. Nýtingarstefna Íslendinga hefur verið og er raunar enn í dag hugsuð út frá stöðu og ástandi einstakra stofnana, ekki af samspili lífkerfisins í heild.

Við erum því miður ekki komið það langt að við höfum tæki eða mælikvarða til að meta það í einhverri heild. Það segja mér okkar bestu vísindamenn á þessari meginstofnun. Og þegar spurt er hvort ráðherra muni beita sér fyrir því að fjárveitingar komi til þessara þátta, ásamt með öðrum þáttum sem lúta að því að auka vitneskju okkar á lífríkinu, tek ég að sjálfsögðu undir hvern þann þátt sem á það kallar.

Ég vil nefna í þessu sambandi að við erum að taka (Forseti hringir.) stór skref, Alþingi, með því að setja hafrannsóknir á Íslandi á allt annan og betri stað en þær hafa verið í langan tíma með áformum um byggingu nýs hafrannsóknarskips, sem er grundvallaratriði og gríðarlegt (Forseti hringir.) hagsmunamál fyrir alla aðila.