149. löggjafarþing — 58. fundur,  29. jan. 2019.

stjórnsýslulög.

493. mál
[14:43]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður reifar hér önnur verkefni nefndar um umbætur á tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsi. Nú er það svo að forgangsröðunin sem birtist í skipunarbréfi sem ég skrifaði handa þessari nefnd sýnir fyrst og fremst stöðu mála. Annars vegar vorum við með mál sem búið var að vinna tiltölulega mikið í, eins og þetta frumvarp sem ég mæli fyrir — en þörf var á að fara yfir það aftur og setja í samráðsferli og vinna með fullnægjandi hætti. Hins vegar voru mál sem voru skemmra komin. Það er nú eina ástæðan fyrir þessari forgangsröðun.

Það sem til stendur á vormisseri er frumvarp um endurskoðun upplýsingalaga, sem er í vinnslu og er núna í samráði, m.a. við dómstóla og Alþingi; það er frumvarp um vernd uppljóstrara og það er frumvarp sem tekur til lögbanns á fjölmiðla. Þannig að ég á von á því að þeim frumvörpum verði skilað á þessum tíma, fyrir 1. mars, svo að ég fari örugglega rétt með, og verði þá sett í opið samráð.

Ég get fullvissað hv. þingmann um að mér finnst mjög mikilvægt að við gerum breytingar á því umhverfi, því að hún spurði líka um það. Mér finnst mjög mikilvægt að við breytum því umhverfi og það er eitt af skýrum markmiðum mínum með því að setja þessa nefnd af stað. Ég tel að hún hafi unnið gott starf og ef við ljúkum þessari vinnu á Alþingi — það eru önnur mál hér fyrir þingi sem heyra undir aðra ráðherra en hafa komið úr vinnu þessarar nefndar — held ég að það verði til mikilla bóta fyrir umhverfi fjölmiðla og tjáningarfrelsi á Íslandi.