149. löggjafarþing — 59. fundur,  30. jan. 2019.

störf þingsins.

[15:13]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Evrópuráðið er sameiginlegur vettvangur 47 Evrópuríkja og Ísland er þar með talið eins og við þekkjum. Í október á síðasta ári birti Evrópuráðið niðurstöður rannsóknar sem gerð var á meðal 80 þingkvenna í 45 löndum. Rannsóknin var um kynferðislegt ofbeldi, líkamlegt og andlegt, gagnvart þingkonum. Niðurstöðurnar eru sláandi. Daglega verða þingkonur í Evrópu fyrir kynferðislegu ofbeldi. Rúmlega 40% af þingkonum í þjóðþingum Evrópu hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni og í 70% tilfella eru gerendurnir karlkyns þingmenn. 50% eða helmingur þingkvenna hefur orðið fyrir kynferðislegum athugasemdum þar sem mikill meginhluti gerenda eru karlkyns þingmenn.

Það sem er einnig sláandi er hversu lágt hlutfall þessara kvenna kærir verknaðinn eða einungis 20%. Í rannsókninni kemur jafnframt fram að afleiðingar þessa fyrir þingkonur eru margvíslegar; kvíði, svefnleysi og ýmis heilsufarsvandamál, auk þess hefur þetta neikvæð áhrif á öll störf þeirra og framgang í stjórnmálum.

Herra forseti. Það er í höndum okkar karlkyns þingmanna að uppræta þessa miklu meinsemd sem viðgengst í öllum þjóðþingum Evrópu, einnig hér á landi. Sá sem hér stendur sótti þing Evrópuráðsins í síðustu viku ásamt hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Á þinginu var hleypt af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi í þjóðþingum. Átakið heitir á ensku, með leyfi forseta, #NotInMyParliament, sem mætti þýða á íslensku Ekki á okkar þingi. Tekin var mynd af hverjum og einum þingmanni með þetta spjald hér, eins og þið sjáið, og þingmenn beðnir um að dreifa þessu á samfélagsmiðlunum.

Ég vil skora á hæstv. þingforseta að láta prenta svona spjöld á íslensku, taka síðan mynd af okkur þingmönnum saman þar sem við sýnum samstöðu og berjumst gegn kynferðislegu ofbeldi gegn þingkonu.

Hv. þingmenn, stöndum saman! (Gripið fram í: Heyr, heyr.)