norrænt samstarf 2018.
Herra forseti. Ég flyt skýrslu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs um norrænt samstarf árið 2018. Skýrslan er of löng til að ég geti flutt hana alla frá orði til orðs en hún er aðgengileg á vef Alþingis og ég hvet sem flesta til að kynna sér skýrsluna og starfsemi Norðurlandaráðs.
Það bar helst til tíðinda á Norðurlandaráðsþingi 2018 að samþykkt var að auka verulega þýðingar á fundargögnum og öðru efni sem tengist starfi Norðurlandaráðs af og á íslensku og finnsku og jafnframt að efla túlkun á fundum ráðsins. Frá 1. janúar 2020 verða sænska, danska, norska, finnska og íslenska skilgreind sem opinber tungumál Norðurlandaráðs, en á skrifstofu ráðsins í Kaupmannahöfn verða skandinavísku málin eftir sem áður vinnumál. Ákvörðunin um þessar breytingar var tekin í framhaldi af tillögu sem landsdeildir Finnlands og Íslands lögðu fram í sameiningu árið 2016 um að gera finnsku og íslensku að vinnutungumálum í Norðurlandaráði til jafns við sænsku, dönsku og norsku.
Landsdeild Íslands beitti sér á árinu gegn áformum Norrænu ráðherranefndarinnar um að skera niður í áföngum fjárveitingar til fjögurra norrænna rannsóknarstofnana, þar á meðal Norræna eldfjallasetursins á Íslandi. Ráðgert hafði verið að í staðinn yrði stofnuninni Nordforsk í Noregi falið að úthluta fjármagninu í formi verkefnastyrkja. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, tóku undir viðhorf íslensku þingmannanna í Norðurlandaráði og jafnframt lýstu ýmsir aðrir þingmenn í Norðurlandaráði sömu afstöðu. Tillagan um niðurskurðinn komst því ekki til meðferðar í Norðurlandaráði og norræna ráðherranefndin hefur tekið málið til endurskoðunar.
Vorþing Norðurlandaráðs var haldið á Akureyri og var það helgað málefnum hafsins. Í september hélt Norðurlandaráð nefndarfundi sína í Nuuk, höfuðstað Grænlands, og var það í fyrsta sinn sem slíkur norrænn fundur hefur verið haldinn þar í landi.
Íslendingar hlutu tvenn af fimm verðlaunum Norðurlandaráðs sem afhent voru í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Ósló í lok október. Auður Ava Ólafsdóttir fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsöguna Ör og Benedikt Erlingsson hlaut kvikmyndaverðlaunin fyrir myndina Kona fer í stríð.
Norðurlandaráð var stofnað árið 1952 og er samstarfsvettvangur þjóðþinga á Norðurlöndum. Álandseyjar, Færeyjar og Grænland taka þátt í samstarfinu. Alþingi hefur átt aðild að ráðinu frá stofnun þess. Norðurlandaráð kemur saman til þingfundar tvisvar á ári og ræðir og ályktar um norræn málefni á stuttum þingfundi að vori á einum degi og á hefðbundnu þriggja daga þingi að hausti. Auk þess kemur Norðurlandaráð saman til nefndafunda þrisvar á ári. Á vegum Norðurlandaráðs er unnið að margvíslegum norrænum verkefnum sem þingmenn, nefndir, flokkahópar eða landsdeildir ráðsins hafa átt frumkvæði að. Norðurlandaráð hefur tillögu- og umsagnarrétt um fjármagn sem er veitt til norrænnar samvinnu árlega.
Fulltrúar í Norðurlandaráði eru þeir þingmenn sem eru valdir af norrænu þjóðþingunum í samræmi við tillögur þingflokka. Í ráðinu eiga sæti 87 fulltrúar. Þing Noregs og Svíþjóðar eiga 20 fulltrúa, Finnlands 18 fulltrúa, Danmerkur 16 fulltrúa, Íslands sjö fulltrúa, Færeyja tvo fulltrúa, Grænlands tvo fulltrúa og Álandseyja tvo fulltrúa. Skipan í sendinefndir þinganna, einnig nefndar landsdeildir, skal endurspegla styrk stjórnmálaflokka á þjóðþingunum. Forseti Norðurlandaráðs kemur frá hverju ríki á fimm ára fresti. Á hefðbundnu þingi Norðurlandaráðs um mánaðamótin október/nóvember er fjallað um fram komnar tillögur og beinir þingið tilmælum til ríkisstjórna landanna eða norrænu ráðherranefndarinnar. Forsætisráðherrar og utanríkisráðherrar Norðurlanda gefa Norðurlandaráðsþinginu skýrslu og samstarfsráðherrar eða fagráðherrar svara fyrirspurnum í sérstökum fyrirspurnatíma. Fjárlög komandi starfsárs eru jafnframt ákveðin á þinginu og skipað er í nefndir og trúnaðarstöður. Á stuttum þingfundi Norðurlandaráðs að vori er sérstök áhersla á ákveðið málefni. Í Norðurlandaráði starfa fimm flokkahópar: jafnaðarmenn, miðjumenn, hægri menn, norrænt frelsi, og norræn vinstri græn. Flokkahóparnir móta sameiginlega afstöðu til einstakra mála og velja þingmenn í nefndir. Að öðru leyti byggist starf Norðurlandaráðs á landsdeildum aðildarríkjanna.
Málefnastarf Norðurlandaráðs fór árið 2018 að mestu fram í fjórum fagnefndum auk forsætisnefndar, þ.e. þekkingar- og menningarnefnd, hagvaxtar- og þróunarnefnd, sjálfbærninefnd og velferðarnefnd. Á milli þinga stýrir forsætisnefnd starfi ráðsins, vísar tillögum til nefnda eða afgreiðir þær. Forsætisnefnd fer jafnframt með utanríkis- og öryggismál svo og samskipti Norðurlandaráðs við aðrar alþjóðastofnanir. Þá fer eftirlitsnefnd yfir ársreikninga ráðsins og stofnana sem starfa innan Norðurlandasamstarfsins. Loks kemur kjörnefnd saman til að gera tillögu að skipan í nefndir og trúnaðarstöður á vegum Norðurlandaráðs.
Herra forseti. Íslandsdeild Norðurlandaráðs var þannig skipuð í upphafi árs 2018: Silja Dögg Gunnarsdóttir formaður, þingflokki Framsóknarflokksins, Oddný G. Harðardóttir, sú sem hér stendur, varaformaður, þingflokki Samfylkingarinnar, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Steinunn Þóra Árnadóttir, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Vilhjálmur Árnason, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Ísleifsson, þingflokki Flokks fólksins, og Anna Kolbrún Árnadóttir, þingflokki Miðflokksins. Varamenn voru Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Brynjar Níelsson, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokki Flokks fólksins, Logi Einarsson, þingflokki Samfylkingarinnar, Willum Þór Þórsson, þingflokki Framsóknarflokksins, og Þorsteinn Sæmundsson, þingflokki Miðflokksins. Sú breyting varð 7. desember að Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokki Flokks fólksins, tók sæti Ólafs Ísleifssonar sem aðalmaður og Inga Sæland tók sæti Guðmundar Inga sem varamaður. Helgi Þorsteinsson gegndi stöðu ritara Íslandsdeildar Norðurlandaráðs árið 2018.
Fulltrúar Íslandsdeildar Norðurlandaráðs í nefndir og embætti voru kosnir á janúarfundum Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 23.–24. janúar 2018. Silja Dögg Gunnarsdóttir og Oddný G. Harðardóttir tóku sæti í forsætisnefnd Norðurlandaráðs, Steinunn Þóra Árnadóttir, Ólafur Ísleifsson og Anna Kolbrún Árnadóttir voru skipuð í velferðarnefnd. Ólafur var einnig skipaður varaformaður eftirlitsnefndar Norðurlandaráðs. Vilhjálmur Árnason og Kolbeinn Óttarsson Proppé tóku sæti í sjálfbærninefnd. Á Norðurlandaráðsþingi sem haldið var í Ósló 29. október til 1. nóvember fluttist Ólafur Ísleifsson úr velferðarnefnd í hagvaxtar- og þróunarnefnd, Steinunn Þóra Árnadóttir fór úr velferðarnefnd í forsætisnefnd og Kolbeinn Óttarsson Proppé fluttist úr sjálfbærninefnd í velferðarnefnd. Jafnframt var ákveðið að Anna Kolbrún Árnadóttir yrði formlega færð úr velferðarnefnd í þekkingar- og menningarnefnd en breytingin tók gildi 1. janúar 2019.
Fulltrúar Íslandsdeildar sátu auk þess á vegum Norðurlandaráðs í stjórnum norrænna stofnana og voru fulltrúar þess út á við. Steinunn Þóra Árnadóttir sat í stjórn Norræna menningarsjóðsins og sótti fundi hennar í Þórshöfn 29.–30. maí og í Kaupmannahöfn 30. nóvember. Hún fór jafnframt á stefnumótunarfund sjóðsins sem haldinn var í Kaupmannahöfn 8. febrúar. Vilhjálmur Árnason átti sæti í eftirlitsnefnd Norræna fjárfestingarbankans og sótti fund hennar í Helsinki 9. mars. Silja Dögg Gunnarsdóttir var aðalfulltrúi Norðurlandaráðs á fundum þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (BSPC). Hún sótti fund fastanefndar BSPC í Brussel 22. febrúar og 27. ársfund samtakanna sem haldinn var í Maríuhöfn á Álandseyjum 26.–28. ágúst. Silja Dögg fór einnig fyrir hönd forsætisnefndar Norðurlandaráðs á fund í Helsinki um málefni Hvíta-Rússlands sem haldinn var 8. maí. Kolbeinn Óttarsson Proppé var fulltrúi Alþingis í BSPC. Hann sótti ársfundinn í ágúst og fundi fastanefndarinnar í Koli-þjóðgarðinum í Finnlandi 14.–15. maí og í Þrándheimi 13. nóvember.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs fundaði ellefu sinnum á árinu. Fundað var í janúar (tvisvar), febrúar, apríl (tvisvar), júní, september, október, nóvember og desember (tvisvar). Til funda deildarinnar var boðið fulltrúum Norðurlandaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Norræna félagsins, Norðurlandaráðs æskunnar, upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd, Norræna hússins og fleiri einstaklingum og samtökum sem tengjast norrænu samstarfi. Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, kom þrisvar sinnum á fund Íslandsdeildar Norðurlandaráðs á árinu, í apríl, september og október.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs er æðsta ákvörðunarvald milli þingfunda ráðsins og getur tekið ákvarðanir fyrir hönd þess. Hún stýrir og samræmir starf nefnda Norðurlandaráðs, ber ábyrgð á heildrænum pólitískum og stjórnsýslulegum áherslum, utanríkis- og varnarmálum, og gerir framkvæmda- og fjárhagsáætlanir ráðsins.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs er æðsta ákvörðunarvald milli þingfunda ráðsins og getur tekið ákvarðanir fyrir hönd þess. Hún stýrir og samræmir starf nefnda Norðurlandaráðs, ber ábyrgð á heildrænum pólitískum og stjórnsýslulegum áherslum, utanríkis- og varnarmálum, og gerir framkvæmda- og fjárhagsáætlanir ráðsins. Forsætisnefnd var árið 2018 skipuð forseta, varaforseta og allt að fimmtán fulltrúum sem kosnir eru á þingi Norðurlandaráðs. Forsetinn og varaforsetinn eru frá því landi sem verður gestgjafi hefðbundins þingfundar að hausti á því ári sem þeir sinna starfinu. Öll ríki á Norðurlöndum og allir flokkahópar eiga fulltrúa í forsætisnefnd.
Forsætisnefndin getur skipað undirnefndir eða vinnuhópa, áheyrnarfulltrúa og eftirlitsaðila um sérstök málefni í afmarkaðan tíma, svo sem fjárlagahóp sem ræðir við norrænu ráðherranefndina um fjárhagsáætlun hennar. Forsætisnefndin ber einnig ábyrgð á samræmingu tengsla við þjóðþing og aðrar svæðisbundnar og alþjóðlegar stofnanir. Nefndin fundaði alls sex sinnum á árinu 2018.
Sex tillögur sem afgreiddar voru úr forsætisnefnd voru samþykktar sem tilmæli Norðurlandaráðs á árinu: um kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi, um aukið norrænt samstarf í Norður-Ameríku, um norræn áhrif og samstarf við G20, um norrænt áhrifamat á löggjafarstarfi ESB, um eflt norrænt samstarf um netvarnir, um áætlanir um heildarvarnir, hættuástand og dreifingaröryggi og um fjárhagsáætlun norrænu ráðherranefndarinnar 2019. Þá afgreiddi forsætisnefnd þrjú mál sem urðu að ákvörðunum um innri málefni: um tungumál í Norðurlandaráði, um norrænan fánadag á degi Norðurlanda 23. mars og um breytingar á starfsreglum Norðurlandaráðs.
Þekkingar- og menningarnefnd Norðurlandaráðs fer með málefni sem snerta menningu, rannsóknir og menntun, grunn- og framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu og alþýðufræðslu, þar á meðal mál sem snerta tungumálasamstarf, nýmiðla, færniþróun og nýsköpun á sviði menntamála. Nefndin vinnur einnig að málum sem snerta borgaralegt samfélag og afl og störf sjálfboðaliða. Íþróttir, tungumál, kvikmyndir og fjölmiðlar, almenn og fjölbreytileg list og menning, og menning barna og ungmenna eru jafnframt á starfssviði norrænu þekkingar- og menningarnefndarinnar. Nefndin fundaði fimm sinnum á árinu.
Fimm tillögur sem afgreiddar voru úr þekkingar- og menningarnefnd voru samþykktar sem tilmæli Norðurlandaráðs á árinu: um stuðning við námsfólk í hættu, um gagnkvæma viðurkenningu á refsiaðgerðum vegna hagræðingar úrslita, um stuðning við verkefnið Stories from the Ice, um greinargerð varðandi menningarstefnu og um að kanna möguleika á að koma á fót samnorrænu doktorsnámi.
Norræna hagvaxtar- og þróunarnefndin vinnur að málefnum og viðfangsefnum sem snerta vinnumarkað og vinnuumhverfi, atvinnulíf, viðskipti, iðnað, orku, baráttu gegn stjórnsýsluhindrunum, samgöngumál og öryggi í samgöngumálum. Nefndin fjallar einnig um mál sem tengjast fjármála- og atvinnustefnu — þar á meðal rammaskilyrði rannsókna, framleiðslu og viðskipta, og í framhaldi af því frjálsa för á mörkuðum og vinnumörkuðum á Norðurlöndum. Byggða- og uppbyggingarstefna, fjarskipti og upplýsingatækni eru einnig á starfssviði norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndarinnar. Nefndin fundaði fimm sinnum á árinu.
Fjórar tillögur sem afgreiddar voru úr hagvaxtar- og þróunarnefnd voru samþykktar sem tilmæli Norðurlandaráðs á árinu: um aðild að stéttarfélögum, um landsbundnar ráðgjafarnefndir um stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum, um stefnu í samgöngumálum á Norðurlöndum og um góð starfsskilyrði í siglingum.
Norræna sjálfbærninefndin vinnur að viðfangsefnum og málum sem snerta umhverfis- og náttúruvernd, náttúruauðlindir — þar á meðal nýtingu náttúruauðlinda í landbúnaði, sjávarútvegi og skógrækt. Loftslagsmál eru jafnframt mikilvægur hluti af starfi nefndarinnar — þar á meðal afleiðingar loftslagsbreytinga sem einkum má merkja á nyrstu svæðum Norðurlanda. Meðal annarra viðfangsefna nefndarinnar má nefna réttindi neytenda, fiskveiðistjórn, stefnumótun í landbúnaði, matvæli, kjarnorkuöryggi, líffræðilegan fjölbreytileika og sjálfbærni.
Níu tillögur sem afgreiddar voru úr sjálfbærninefnd voru samþykktar sem tilmæli Norðurlandaráðs á árinu: um norræna samstöðu á vettvangi ESB um málefni skóga (tvær samnefndar tillögur), um sameiginlegan norrænan staðal um hafnargjöld á grundvelli umhverfissjónarmiða, um endurskoðun á tilskipun um móttökuaðstöðu í höfnum fyrir afhendingu úrgangs frá skipum, um minni losun frá siglingum á Norðurlöndum, um plastagnir í drykkjarvatni, um áhrif Norðurlanda í viðræðum um alþjóðlegan samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika, um þróun fyrirkomulags varðandi áhrif Norðurlanda í viðræðum um alþjóðlegan samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika og um nýja samstarfsáætlun á umhverfis- og loftslagssviði.
Norræna velferðarnefndin leggur áherslu á norræna velferðarlíkanið. Nefndin fæst m.a. við mál sem snerta umönnun barna, ungmenna og aldraðra, fötlun, áfengi, fíkniefni og misnotkun. Einnig er unnið með viðfangsefni sem tengjast jafnrétti, borgaralegum réttindum, lýðræði, mannréttindum og baráttu gegn afbrotum. Samþætting innflytjenda, fólksflutningar og flóttamenn heyra jafnframt undir nefndina og sama er að segja um húsnæðismál og málefni frumbyggja Norðurlanda. Nefndin fundaði fimm sinnum á árinu.
Fimm tillögur sem afgreiddar voru úr velferðarnefnd voru samþykktar sem tilmæli Norðurlandaráðs á árinu: um skyldubundna sáttameðferð fyrir forsjárhafa við skilnað að borði og sæng, um sameiginlega norræn jafnlaunavottun, um jafnrétti á vinnumarkaði, um forvarnir gegn kulnun í starfi, um samræmingu á löggjöf um hinsegin fólk á Norðurlöndum, um aukið norrænt samstarf í heilbrigðismálum og um framkvæmdaáætlun fyrir norrænt samstarf um málefni fatlaðs fólks 2018–2022.
Eins og heyra má er viðfangsefni nefndanna víðtækt og skiptir máli fyrir norrænt samfélag og afar mikilvægt að Ísland taki þátt á þessum vettvangi.
Eftirlitsnefnd Norðurlandaráðs fylgdist fyrir hönd þingsins með starfsemi sem fjármögnuð er úr sameiginlegum sjóðum Norðurlandanna. Nefndin hefur einnig umsjón með málefnum sem snerta túlkun samninga um norræna samvinnu, vinnutilhögun Norðurlandaráðs og önnur innri málefni. Um þetta fundaði nefndin fimm sinnum á árinu 2018.
Kjörnefnd Norðurlandaráðs undirbýr og gerir tillögur að kjöri sem fram fer á þingfundum og aukakosningum í forsætisnefnd. Enginn íslenskur þingmaður átti sæti í nefndinni á árinu 2018.
Forseti. Í skýrslunni, sem er til umræðu og liggur hér frammi og má einnig finna á vef Alþingis, er ítarlega fjallað um janúarfundi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi, þemaþing Norðurlandaráðs á Akureyri, samráðsfund forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Noregi, fundi Norðurlandaráðs í Nuuk, Norðurlandaráðsþing í Ósló, fundi forsætisnefndar í Espoo, þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins í Hamborg, verðlaun Norðurlandaráðs og starfsáætlun og áherslur Norðurlandaráðs á árinu 2019 en helstu áhersluatriði á árinu 2019 verða jafnréttismál, loftslagsmál, afnám stjórnsýsluhindrana og lýðræði.
Forseti. Ég hef lokið máli mínu, en vil benda á hversu mikilvægt samstarfið er á meðal Norðurlandanna fyrir okkur Íslendinga. Það er eitt mikilvægasta samstarf sem við tökum þátt í á alþjóðavettvangi og því er mjög mikilvægt að íslenskir þingmenn séu þar virkir.