149. löggjafarþing — 61. fundur,  4. feb. 2019.

málefni aldraðra.

[15:24]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Tifandi tímasprengja er lýsingin á því sem framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna segir um málefni aldraðra í Hafnarfirði. Þar eru 30 manns með heilabilun á biðlista eftir dagdvalarrými. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur fengið samþykki húsráðanda í Drafnarhúsi en þar er hægt að bæta strax við tíu dagdvalarrýmum en því var synjað af heilbrigðisráðuneytinu.

Ég neita að trúa að heilbrigðisráðherra hafi komið að því. Drafnarhúsið er staður þar sem er dagþjálfun fyrir heilabilaða. Nýlega hefur einstaklingur með heilabilun verið fluttur hreppaflutningum frá Hafnarfirði til Húsavíkur og með því voru hjón aðskilin. Er þetta boðlegt? Ég segi nei.

Hvað eru margir makar að bugast við umönnun veikra maka án hjálpar? Eru hreppaflutningar eina lausnin? Það er fáránleg lausn og það er lausn sem er ekki í boði vegna þess að við verðum að hugsa um þetta. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að árið 2030 mun eldri borgurum hafa fjölgað úr 42.000 í yfir 60.000, hefur fjölgað um helming. Og ég spyr ráðherrann: Er þetta ásættanlegt? Ætlar hún að sjá til þess að þessi tíu dvalarrými verði nýtt? Þarna þarf ekki að byggja húsnæði heldur er eingöngu um kostnað að ræða. Það er yfirfullt á bráðamóttöku Landspítalans. Er eina lausnin að fara með heilabilaða þangað og er einhver lausn í sjónmáli um að samið verði við bæjarstjórn Hafnarfjarðar um að gera eitthvað í þessum málum strax?