149. löggjafarþing — 61. fundur,  4. feb. 2019.

vandi ungs fólks á húsnæðismarkaði.

[16:14]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Við þurfum að gera talsvert, sagði síðasti hv. ræðumaður, Logi Einarsson. Ég tek undir það. Við erum að ræða húsnæðismarkaðinn, og sérstaklega vanda ungs fólks. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni fyrir að taka þessa umræðu upp og hæstv. félags- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, fyrir að upplýsa okkur um þær aðgerðir og leiðir sem hæstv. ríkisstjórn stendur fyrir.

Tillögur átakshópsins eru, eins og komið hefur fram í umræðunni, jákvætt innlegg. Það er mikilvægt að fylgja þeim eftir með raunhæfum aðgerðum sem gagnast líka ungu fólki og eins er mikilvægt að klára tillögur starfshóps sem snúa sérstaklega að ungu fólki og tekjulágum um að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Þá er ég að vísa til starfshóps sem Frosti Sigurjónsson fer fyrir, fyrrverandi hv. þingmaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Ég er sannfærður um að það verða mjög gagnlegar tillögur.

En það er auðvitað engin ein aðgerð sem mun leysa í eitt skipti fyrir öll það verkefni sem blasir við á húsnæðismarkaði eða hjá ungu fólki sem er að hefja búskap undir eigin þaki eða í leigu. Það hefur ýmislegt verið gert til að liðka til við fyrstu kaup, til að mynda séreignarsparnaðarleiðin, en það er líka ýmislegt sem hefur bjagað þetta kerfi og gert það að verkum að margt hefur farið úrskeiðis. Verðtryggingin er eitt dæmi. Hún veldur því til að mynda að við höfum byggt of marga fermetra vegna þess að greiðslubyrðin er bara inn í eilífðina. En við ráðum við það. Það er eitt. Við erum að byggja of marga fermetra. Tíðarandinn hefur breyst, ungt fólk vill ekki svona marga fermetra, svona stórar eignir. Við þurfum að byggja ódýrar, færri fermetra og byggja meira til að mæta framboðsskorti.