vandi ungs fólks á húsnæðismarkaði.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur farið fram og fagna henni raunar. Það er erfitt að koma inn á öll þau atriði sem komið var inn á vegna þess að það var drepið á fjölmörgum hliðum á þessum stóra málaflokki. Ég vil þó koma inn á nokkur atriði.
Það er alveg ljóst að að verulegu leyti ræðst þetta af framboði og eftirspurn og það er mikilvægt að tryggja nægilegt framboð af lóðum, rétt eins og margir þingmenn hafa komið inn á. Jafnframt er mikilvægt samhliða því að tryggja að þó að þarna sé um framboðs- og eftirspurnarlögmál að ræða séu bæði ríki og sveitarfélög óhrædd við að grípa inn í og stýra málum og líta þar með á húsnæðismál sem velferðarmál en ekki eingöngu sem lögmál markaðarins.
Ég vil síðan segja að ég held að það sé alveg ljóst að það hefur verið skýr stefna þessarar ríkisstjórnar að húsnæðismálin frá fyrsta degi séu meðal þeirra mála sem ættu að fara inn í þann farveg að vera í samtali milli aðila vinnumarkaðar. Það kom fram í mínu máli strax á fyrstu dögum þessarar ríkisstjórnar og hefur gert það ætíð síðan að þetta væri í þeim farvegi. Margir hafa bent á að við séum í stórum kjarasamningum sem hafi gríðarleg áhrif á hvernig niðurstaða þeirra verði og að það sé eðlilegt að eiga þar samtal við aðila vinnumarkaðarins.
Ef við skoðum söguna er það líka þannig í húsnæðisuppbyggingunni og sögu okkar að stærri skref hafa oft og tíðum verið í tengslum við kjarasamninga. Miðað við niðurstöður þessa átakshóps held ég að það hafi lukkast mjög vel og nú þarf að halda því samtali áfram.
Síðan þurfum við að fá tillögurnar um fyrstu kaupin í nefndinni sem Frosti Sigurjónsson stýrir. Þær eru væntanlegar síðar í þessum mánuði. Svo þarf að taka umræðuna um verðtrygginguna og húsnæðisliðinn. Allt eru þetta atriði sem liggja núna undir í samtali á milli aðila vinnumarkaðarins annars vegar (Forseti hringir.) og stjórnvalda hins vegar. Ég er sannfærður um að takist okkur að taka á þessum stóru málum muni okkur takast að ná hér stöðugleika í húsnæðismálum án þess að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru, hv. þm. Guðmundur Andri Thorsson.
Ég þakka þér jafnframt (Forseti hringir.) fyrir þessa góðu umræðu.