lóðakostnaður.
Herra forseti. Ég skoðaði svolítið á sínum tíma hvort hægt væri að fara að byggja gámahús og svoleiðis. Ég skoðaði framboð á lóðum einhvers staðar nálægt höfuðborgarsvæðinu, jafnvel upp á Mosfellsheiðina ef við myndum skoða það og kannski fjárfesta í bíl sem kæmist í gegnum snjóinn. Ég skoðaði þetta svolítið vel. Ég talaði líka við ráðuneytið og það vildi meina að það væri hægt að byggja 26 m² íbúðir og gera það löglega samkvæmt öllum reglugerðum.
Í þessari rannsókn komst ég að því að aðallega þyrfti að horfa til þriggja atriða sem kæmu til kostnaðar. Það er náttúrlega lóðin sjálf og allur annar kostnaður sem hið opinbera rukkar. Svo er það að byggja upp og þá skoðaði ég það. Maður getur algjörlega lágmarkað það með einhvers konar gámahúsi. Svo er það fjármagnskostnaðurinn, kostnaðurinn við fjármagnið til að geta borgað þetta allt saman.
Þarna er hægt að koma með alls konar lausnir. Ragnar Þór Ingólfsson og m.a. Helgi í Góu hafa kallað eftir því að lífeyrissjóðirnir komi að málum. Þá er hægt að lækka fjármagnskostnaðinn. Það er nokkuð sem væri hægt að gera (Forseti hringir.) með lagabreytingu. Þeir vilja meina að það sé hægt að gera samkvæmt lögum og þá þarf kannski bara reglugerðarbreytingu. Lífeyrissjóðirnir gætu komið í miklu ríkari mæli að fjármögnun því að þeir geta verið með miklu lægri fjármagnskostnað af því að þeir hafa sínar skuldbindingar til lengri tíma (Forseti hringir.) til sinna sjóðfélaga. Þarna væri strax ein lausn sem væri hægt að skoða. Ég efast um að hún verði skoðuð en það væri áhugavert að heyra hjá ráðherra hvort hann hafi eitthvað skoðað það og hvort það verði eitthvað skoðað í framhaldinu af hans vinnu.