149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[14:46]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Meiri hlutinn er einmitt að bregðast við því að efla öryggi vegfarenda. Við erum með tillögur til að efla samgöngukerfið og tryggja öryggi vegfarenda. Er búið að vanrækja alveg þennan þátt? Ja, það var nú samgönguráðherra úr flokki hv. þingmanns sem fyrstur lagði fram þessar hugmyndir 2007–2008. Þá virtist Samfylkingin vera á því að þetta væri leiðin til að stíga stór skref. Þó hafði aldrei nokkru sinni verið sett eins mikið til samgöngumála og einmitt á þeim árum.

Það er búið að sýna áherslur ríkisstjórnarinnar í þessum efnum núna. Við erum að auka verulega framlögin. Það var rætt heilmikið um fjárlagafrumvarpið og breytingartillögur komu fram hjá minni hlutanum í aðdraganda fjárlaga fyrir þetta ár. Ég minnist þess ekki að hafa séð eina einustu tillögu um samgöngumál í tillögum minni hlutans.