149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[14:49]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Það er auðvitað stórt skref, virðulegur forseti, í umhverfismálum ef umferðin eyðir minna eldsneyti og kemst hraðar yfir. Þar eru auðvitað samlegðaráhrifin í þessu. Stendur til að leggja á veggjöld í öllum göngum, brúm og vegum? Mig langar nánast að varpa þeirri spurningu fram, virðulegi forseti, hvort hv. þingmaður hafi verið sofandi á fundum nefndarinnar (HVH: Nei, það var hv. þingmaður ekki.) sem hún er þátttakandi í. (HVH: Svara …) Þar er margbúið að ræða þetta mál, virðulegur forseti, og það hefur komið ítrekað fram hjá meiri hlutanum, hjá fulltrúum ráðuneytisins og þeim sem við höfum verið að ræða við, að þetta er óútfært og þarna þarf að gæta einhverrar sanngirni. Áform meiri hlutans um tillögu um að leggja á veggjöld víðar á landinu er til að jafna þessar álögur á landsmenn alla. Þetta verður með þátttöku allra íbúa landsins. Þar hafa gjöld verið nefnd í jarðgöng, jafnvel í einstökum verkefnum eins og ég fór hér yfir, (Gripið fram í.) sem verða samfjármögnuð úr samgönguáætlun og með veggjöldum. Þetta veit hv. þingmaður mætavel, (Gripið fram í.) virðulegur forseti, og er hér að reyna að slá ryki í augu þeirra og eyru þeirra sem á okkur er að hlusta.