fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að þakka hv. framsögumanni fyrir hans ítarlegu yfirferð. Ég vil leyfa mér að spyrja hvort hann geti varpað ljósi á þær vendingar sem urðu varðandi framkvæmdir á Kjalarnesi. Fregnir bárust af því að ákveðið hefði verið að flytja til fé með fyrirsjáanlegri seinkun á framkvæmdum á Kjalarnesi.
Síðan hafa borist fregnir af því að því hafi verið kippt í liðinn, eins og það heitir. En í millitíðinni setur auðvitað mikinn ugg að fólkinu á Kjalarnesi sem setti af stað undirskriftasöfnun. Byggðaráð Borgarfjarðar var búið að álykta um málið og sjálfsagt fleiri. Ég geri ráð fyrir að fólki á Skaganum hafi ekki orðið vel við þetta.
Herra forseti. Ég held að gagnlegt væri ef hv. framsögumaður gæti varpað ljósi á þessa atburðarás.