149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[14:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við í meiri hlutanum stöndum við það sem stendur í þessu nefndaráliti, að stór meiri hluti þeirra sem komu fyrir nefndina hafi verið hlynntur því að fara veggjaldaleið ef það mætti verða til þess að flýta framkvæmdum í samgöngukerfinu. Það er alveg rétt það voru kannski ekki neinar aðrar lausnir uppi á borðum og þær eru svo sem vandfundnar.

Þó hefur til að mynda verið bent á af hálfu þingmanna Sjálfstæðisflokksins að fara mætti þá leið að selja eitthvað af eignum ríkisins til að byggja upp í samgönguinnviðum. Við teljum að hér sé um svo brýnt mál að ræða sem bregðast þarf við sem allra fyrst. Ef við værum að horfa á þetta í einhverju öðru samhengi myndum við líkja þessum slysakostnaði við almannavarnaástand. Við stöndum því við álitið.

Á fundi nefndarinnar núna í janúar komu fulltrúar allra landshlutasamtaka, sveitarfélaga, og var almennt mjög vel tekið í þessar hugmyndir utan ákveðins efa sem snýr að útfærslunni, sem kemur fram í þingmáli samgönguráðherra síðar.