fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Í þessu samhengi vil ég vitna til þeirra viðmiðana sem eru milli samgönguráðuneytisins annars vegar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hins vegar. Eins og fram kemur í nefndaráliti leggur meiri hluti nefndarinnar áherslu á að áhrifa þeirra framkvæmda sem farið verður í á grundvelli gjaldtöku á höfuðleiðunum inn og út úr borginni muni gæta innan höfuðborgarsvæðisins.
Við tölum um leiðina frá Reykjanesbraut alveg inn á Holtaveg. Það þýðir þá mislæg gatnamót við Bústaðaveg og frágang frá Stekkjarbakka að Holtavegi og reyndar uppi í Breiðholti líka. Við teljum það eðlilegt vegna þess að þessi mikilvægi samgöngurás er hluti af meginleið Reykjanesbrautarinnar í gegnum borgina.
Að því leyti finnst mér það gefa augaleið að ef menn fara í þær framkvæmdir á grundvelli gjaldtökunnar innan höfuðborgarsvæðisins (Forseti hringir.) verði gert ráð fyrir útfærslu borgarlínunnar í tengslum við það (Forseti hringir.) eða aukinna almenningssamgangna um leið og við bætum almennar samgöngur annarra (Forseti hringir.) farartækja, hjólandi og gangandi, á sama svæði.