fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Helgu Völu hvar þau í minni hlutanum ætli að finna fjármuni til að fylgja breytingartillögum sínum eftir um að stórefla samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, bæði almenningssamgöngur og vegaframkvæmdir sem eru í töflu og breytingartillögu. Ég man ekki betur en að allar þær tillögur sem þau nefna um hvernig mögulegt sé að finna fjármagnið í ríkissjóði eigi líka að nýta til að auka almannatryggingar og nýsköpun og efla menntakerfið, miðað við umræðu um bæði fjármálaáætlun og fjárlög.
Mig langar spyrja minni hlutann hvort hann ætli að nota peningana í það eða í vegakerfið. Eða geta flokkarnir sem þau leggja til borgað þetta allt saman?
(Forseti (JÞÓ): Forseti minnir þingmenn á að ávarpa þingmenn fullu nafni.)