149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[15:49]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni kærlega fyrir andsvarið og svara því til að jú, ætli það sé ekki hvatning til þess að skipta um bíl og skipta algerlega um ferðamáta ef skattlagning verður það há að almenningur ræður ekki við hana. Ég held að það sé alveg ljóst og kannski er það það sem við viljum, af því að við stefnum öll að betra lífi á jörðinni. Það er kannski hugmyndin hjá hluta meiri hlutans en ég er ekki viss um að meiri hlutinn tali þar einum rómi. Þetta eru einhvern veginn ekki alveg nógu mótaðar hugmyndir. Það virðist sem á einhvern hátt sé hvatt til þess að skipta um og fara úr bensín- og olíubílum en líka til almenningssamgangnanotkunar. (Forseti hringir.) Það er a.m.k. það sem við erum að gera. En þá þarf líka að vera slíkt kerfi til að taka á móti.

Ég verð að svara seinni spurningu í seinna andsvari.