fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Það er þá þannig að veggjöld geta liðkað til fyrir orkuskiptum, það er ágætt.
En hver er munurinn á kolefnisgjaldi og veggjaldi? Ef það má leggja á kolefnisgjöld sem leggjast flatt á alla, af hverju má þá ekki að leggja á veggjöld? Sama spurning, ég vil heyra þetta.
Borgarlína? Já, takk. Ég vil gjarnan fá svar við því og eins hvort ekki sé raunverulega rétt þegar verið er að vinna saman um borgarlínuna, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins, að vera búin að setja 7,1 milljarð í fyrsta tímabil og bíða síðan eftir samkomulaginu um það hvernig eigi að fjármagna afganginn á öðru og þriðja tímabili. Það samkomulag er enn þá í deiglunni í nefnd sem þarna er til staðar.
Viljayfirlýsingarnar eru mjög klárar. Ég get ekki séð að það sé nein tortryggni í gangi varðandi það að ríki og borg munu klára borgarlínuna en með hugsanlegum svæðisgjöldum, (Forseti hringir.) eða hvað við köllum það, innan borgarmarkanna eða höfuðborgarsvæðisins.