fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ef ég væri spurður hvort ég væri á móti eða með veggjöldum og fengi rök einhvers þingmanns — sem sennilega væri í stjórnarandstöðu, ef ég væri stjórnarþingmaður — þá vantar mig hin rökin. Var það útskýrt hvað býr að baki og hver gagnsemin væri? Var farið í ábatann? Var farið í gegnum það hvers vegna við teljum þessi veggjöld snjalla lausn við að flýta þessu öllu? Það stórefast ég um. Að þessu leyti getum við fengið þúsund manns til að segja: Ég er á móti veggjöldum á forsendum hv. þm. Björns Leví Gunnarssonar — en ekki á mínum forsendum.