149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[16:22]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins mikið og mig langar að fara í muninn á bifreiðaskatti og eldsneytisgjöldum og orðhengilshætti í kringum gjöld og skatta ætla ég aðeins að halda þessu áfram með umsagnirnar. Í bréfinu kemur fram að ég andmæli áformum um álagningu veggjalda eins og þau koma fram í forsendum meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Þar var minnisblaðið birt fullum fetum. Fólk er að taka afstöðu til orða meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, ekki minna orða. Fólk sem gefur þessar umsagnir gefur þær í sínu nafni og ber væntanlega ábyrgð á því sem það sendir frá sér, ekki satt? Er ekki neitt að marka þeirra eigin orð?