fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Pólitísk ákvörðun — já, það er sennilega alveg hárrétt. Ég átti ekki aðild að henni og ég er sannfærður um að því hefði mátt haga á annan hátt. Ég get ekki svarað því öðruvísi. Það þarf að afla fjár til þessarar flýtingar sem við erum öll sammála um að þurfi að eiga sér stað. Ég sem vinstri maður styð skattkerfi til jöfnunar en ef við förum í það sem hv. þingmaður talaði um þá bíður fullt af öðrum verkefnum. Hvað af þeim eigum við að velja? Ef ég geri grein fyrir ábatanum af þessu, fólk keyrir þessar leiðir hvort eð er, tel ég að með því lága gjaldi sem þarna er talað um sé um að ræða betri og skilvirkari leið en að fara út í (Forseti hringir.) skattkerfisbreytingar sem ekki er einu sinni meiri hluti fyrir í þessari (Forseti hringir.) ágætu ríkisstjórn. Ég held að við séum þeir einu, Vinstri grænir, hér á þinginu sem viljum t.d. hækka tekjuskatt í þrepum.