fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Ara Trausta Guðmundsson. Á bls. 12 í stjórnarsáttmálanum er fjallað um samgöngur og fjarskipti. Þetta er frekar framarlega í stjórnarsáttmálanum og segir alveg í byrjun, í fyrstu málsgreininni, með leyfi forseta:
„Brýn verkefni blasa við í innviðauppbyggingu um land allt.“
Svo er haldið áfram:
„Þar má nefna verkefni í samgöngum.“
Nokkur atriði eru talin upp, brýn verkefni í innviðauppbyggingu. Þetta kemur fram alveg fyrst í samgöngu- og fjarskiptakaflanum.
Síðan segir:
„Svigrúm er á næstu árum til að nýta eignatekjur ríkisins í slík verkefni og tryggja þannig þá traustu innviði sem eru forsendan fyrir fjölbreyttu og kröftugu atvinnulífi um land allt.“
Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson var að segja mér að eignatekjur ríkisins væru í kringum 33 milljarðar en ríkið ætlar að nota 30 af þeim til að greiða upp skuldir. (Gripið fram í: Arðgreiðslur.) Það eru bara arðgreiðslurnar, já, það eru fleiri eignatekjur. Síðan ætlar ríkið að nota 30 milljarða til að greiða upp skuldir ríkissjóðs og taka lán til að setja í samgöngur. Er þingmaðurinn sammála því að þetta sé nokkurn veginn staðan og hvernig réttlætir hann það?