fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Þetta eru þungar spurningar. Ég er kannski ekki óskaplega snjall í fjármálum en skuldir ríkisins hljóta að bera háa vexti eða vera erfiðar í endurgreiðslu, en ég reikna með að lán sem fáist til þessara framkvæmda séu með þeim hagstæðustu sem hægt er að hugsa sér. Kannski að það svari spurningunni að einhverju leyti. Þegar rætt er um að setja jafnvel eignarhluti ríkisins í innviðauppbyggingu erum við líka að forgangsraða. Forgangsröðunin núna er sú að heilbrigðiskerfið er númer eitt. Menn geta svo deilt um hvort menntakerfið sé númer tvö eða þrjú eða hvort vegirnir komi þar í milli. Það er auðvitað pólitísk ákvörðun. Þess vegna held ég að sú lausn sem þarna er sé alveg verjandi.