149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[16:32]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ríkið getur alveg tekið lán fyrir framkvæmdunum án þess að rukka landsmenn síðan fyrir. Ríkið getur notað eignatekjur sínar til að greiða upp skuldir og svo tekið önnur lán og notað þau til að fara strax í að byggja upp samgönguáætlun. Þannig væri tryggt öryggi og lífsgæði landsmanna hvað varðar tíma, stress o.s.frv. Þetta er hægt að gera. Ég veit að það eru líklega 80 einstaklingar í flokksráði Vinstri grænna sem samþykktu stjórnarsáttmálann og þar segir að nota eigi eignatekjur ríkisins í þau verkefni, í að byggja upp samgöngur. Það er ekki verið að nota allar eignatekjur ríkisins í það. (BLG: Arðgreiðslur.) Það er verið að setja á ákveðna tekjuöflunarleið og þá langar mig að spyrja um jafnræði. Það á að setja þetta á þrjá staði á leið út úr höfuðborginni, til að borga fyrir alls konar samgöngur. Hefur þingmaðurinn eitthvað horft til þess (Forseti hringir.) að kannski væri hægt að taka greiðslu með því að láta lesa af mælum bílanna? Það væri algjört jafnræði í því að greiða bara fyrir það sem maður notar. Er þingmaðurinn hlynntur því, í staðinn fyrir að aðeins sá sé rukkaður sem er á leiðinni inn og út úr höfuðborginni?