149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[17:05]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Ég þakka andsvarið sem er eins og, ef ég heyrði rétt, það sem kollegi minn og annar fulltrúi minni hlutans á álitinu fékk.

Því er til að svara að við teljum upp ákveðnar leiðir. Það eru ákveðnar tillögur. Sumar þykja mér fýsilegri en aðrar. Ég nefndi í ræðu minni t.d. sölu ríkiseigna sem er ekki á álitinu einfaldlega vegna þess að ekki er fullkomin samstaða um það meðal okkar, ekki frekar en ég ímynda mér að sé meðal ríkisstjórnarflokkanna.

Ég er ekki ráðandi hér, ég er ekki í meiri hluta. Ég ræð því ekki hvaða leið er farin. En þetta eru alla vega þær tillögur sem eru uppi á borðinu. Í ljósi þess að mér þykir leiðin með veggjöldin, eins og ég lýsti í ræðunni og aftur í andsvari við hæstv. ráðherra áðan, ekki ganga upp, ekki allar leiðirnar í einu, ekki á sama tíma og tekinn er peningur út úr fjármögnun ríkissjóðs til þessa sama svæðis og settur annað, tel ég það einnar messu virði að fara í aðra þætti. Þetta eru þrátt fyrir allt (Forseti hringir.) háar fjárhæðir. Þetta eru samt 13 milljónir sem má auðveldlega sækja í einhverja af öðrum tillögum, jafnvel sambland.