149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[17:08]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Hvað varðar fyrri hlutann spyr hv. þingmaður hvort ég telji í lagi sem fulltrúi minni hlutans að leggja fram ófullbúnar hugmyndir. Má ég vísa í orð þingmanna meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem ítrekað hafa lýst því yfir að hugmyndir um veggjöld séu ófullkomar. Það eina sem setja þarf upp er að fara eigi í framkvæmdirnar. Fullkomlega ófullkomið og ófullbúið. Fullkomlega óljósar hugmyndir um svæðisbundna skattlagningu á íbúa suðvesturhornsins.

Herra forseti. Ef eitthvað er tel ég meira bit í tillögu minni hlutans hvað það varðar.

Ég er orðin svo reið að man ekki seinni hlutann. (VilÁ: Hvaða framkvæmdir …)Takk fyrir.

Þá er því til að svara að frá upphafi hefur verið talað um að forgangsröðun í samgönguáætlun sé á þann veg að þær framkvæmdir sem mest eru knýjandi vegna öryggisatriða séu fremstar. Engu að síður eru þær komnar aftur í röðina og verða ekki fjármagnaðar nema með veggjöldum. (VilÁ: Hverjar eru fyrir framan?)Þær sem eru fjármagnaðar … (Forseti hringir.) — Ég hef ekki tíma, herra forseti er farinn að berja í bjölluna og ég er orðin hrædd við hann. — Þetta er komið aftur fyrir (Forseti hringir.) í samgönguáætlun, sjáðu til. (Gripið fram í.)Það er … (Gripið fram í.)— Úr samgönguáætlun, (Forseti hringir.) sem eru fjármagnaðar í samgönguáætlun.