149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[17:11]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Ég óttast að mér dugi ekki tvær mínútur til að annars vegar skilja spurningu hv. þingmanns og hins vegar að svara henni. Það sem við erum að tala um í þessu áliti er að samgönguáætlun er talin af þeim sem hana leggja fram, samgönguyfirvöldum, ekki bara fullfjármögnuð heldur sé þar forgangsraðað með tilliti til öryggisþátta. Þar inni eru ekki þessar stofnleiðir á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að þær koma inn með veggjöldum. Hvað þýðir það? Að þær eru af samgönguyfirvöldum ekki taldar jafn brýnar í öryggismálum og þær sem eru í samgönguáætlun. Þetta er punkturinn. Ég sé það á andliti hv. þingmanns að annaðhvort skilur hún mig ekki eða er ósammála.

Ég legg bara til að við sem nefndarmenn í umhverfis- og samgöngunefnd setjumst yfir málið. Þetta er okkar nálgun í þessu máli. Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Það er ekki bæði hægt að hrósa sér af því að setja þau verkefni sem eru brýnust með tilliti til öryggismála fremst í fullfjármagnaða samgönguáætlun og ætla síðan íbúum höfuðborgarsvæðisins að fjármagna framkvæmdir með veggjöldum, sem eru líka rökstuddar með því að þær séu brýnustu öryggisframkvæmdirnar. Það erum við að tala um.