fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Stuttur tími er sem við höfum til að ræða þessi mál. Ég spurði spurninga: Hvaða tíma getum við talað um sem almenningssamgöngur í strætó? Sjö klukkustundir og 15 mínútur til Akureyrar, 12–14 klukkustundir frá Reykjavík til Egilsstaða með strætó. Er það eitthvað sem við getum byggt á þegar við erum að tala um almenningssamgöngur í landinu? Þetta er nauðsynlegt að fá fram vegna þess að mér finnst umræðan í þingsal oft vera þannig að það eigi allir að vera brunandi um þjóðvegi landsins í strætó. Er líklegt að það verði einhvern tímann þannig?
Ekki erum við að fá lestarkerfi, ég held að það sé nokkuð ljóst. Ég vil fá svar við spurningunum. Ég tók alveg eftir umræðunni um flugmálin hjá hv. þingmanni, hún var stutt og knöpp. Og um Reykjavíkurflugvöll. Ég er ósammála mörgu sem þar var sagt. Er hv. þingmaður sammála því að við eigum að miða við það, eins og kemur aftur fram í áliti umhverfis- og samgöngunefndar, að allir íbúar landsins eigi kost á því að komast til Reykjavíkur hvaðanæva af landinu á 3,5 klukkustundum? (Forseti hringir.) Það væri fínt að fá svar líka við því. (Gripið fram í.) Að allir íbúar landsins eigi að komast til Reykjavíkur af landsbyggðinni á 3,5 klukkustund til Reykjavíkur. (HKF: Ég er sammála því.)