fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Ég hef engan sérstakan áhuga á því að það taki mig 12 klukkutíma að komast og sækja nauðsynlega þjónustu, ég tala nú ekki um þá þjónustu sem ég get gert kröfu um að stjórnvöld afhendi mér í ljósi þess að ég borga mína skatta og skyldur. Þannig að ég er alveg sammála hv. þingmanni að þarna þurfi að gera úrbætur.
Ég líkt og aðrir í Viðreisn, við lítum á samgöngukerfið sem eina heild, loftumferðina þar á meðal, en ef hv. þingmaður er að reyna að fá mig til að taka afstöðu til skýrslunnar hér og nú, þegar ég er búin að lýsa því yfir að ég vilji fá meiri tíma til að skoða hana í samhengi við uppbyggingu almenningssamgangna, (Gripið fram í.) þá getum við ekki — (Gripið fram í.) Það kemur við uppbygginguna — tel ég að 12 tímar heyri til almenningssamgangna? Vegna þess að ég skildi ekki spurninguna. Ég vil að þetta sé stytt. Ég vil að allir eigi þess kost að nýta almenningssamgöngukerfi okkar og ég tel að mjög mikilvægt sé að það sé unnið í samhengi.