149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[17:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nokkuð hefur verið rætt um það í umræðunni hve málinu hafi verið mjög svo hraðað fyrir hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Hv. þingmenn hafi tekið, eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir orðaði það áðan, ákvörðunina á einni viku og átti að þrýsta því í gegn án nokkurs undirbúnings.

Hv. þingmaður er formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis og var það í haust þegar þau mál voru til umræðu. Mig langar að fá staðfestingu fram hjá honum á því að sá skilningur minn sé réttur að þó nokkur umræða hafi farið fram um þetta mál, alveg sérstaklega á milli þingmanna minni hlutans, á þeim tíma og að almennur stuðningur hafi verið við að halda áfram með málið. Ég hafi hreinlega fengið þau skilaboð til að færa hæstv. umhverfis- og samgönguráðherra að land væri meðal (Forseti hringir.) minni hlutans til að ná samstöðu um þetta mikilvæga mál.