fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir prýðisræðu og efnið í þeirri ræðu. Þetta er mér mikið hjartans mál, samgöngur.
Nú verður það alltaf mikið hitamál þegar við ræðum samgöngumál, eðlilega. Hver vegur að heiman er vegurinn heim hjá okkur öllum sem búum í þessu landi. Núna er það hitamál sérstaklega vegna kostnaðarins, gjaldtökuleiðinnar og hvaðan peningarnir koma. Þá langar mig að inna þingmanninn eftir því, því að það er mikill óróleiki í almenningi yfir því hvernig kostnaðurinn verður greiddur af þessum framkvæmdum sem verið er að hugsa um hérna, hvernig við róum þann óróleika (Forseti hringir.) til að komast að meiri sátt um framkvæmdina. Mínúta er allt of fljót að líða.